Vélfag aldrei á bannlista Esb í Brussel samt ofsótt á Íslandi

Hallur Halsson skrifar:
Gjaldþrota hátæknifyrirtækið Vélfag var aldrei sett á bannlista Esb, ALDREI. Þrátt fyrir það staðhæfði Rúv að Vélfag hefði sætt viðskiptabanni Esb. Þann 25.11.2025 birti Rúv frétt eftir Helga Seljan og Frey Gígja Gunnarsson. Frétt rúv hófst á staðhæfingu um viðskipaþvinganir Esb í Brüssel: “Vélfag varð fyrsta íslenska fyrirtækið til þess að sæta viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins vegna tengsla við Norebo.“ Þetta er rangt og leiðréttist hér. Esb hefur aldrei lýst viðskiptabanni á Vélfag. Esb setti Norebo opinberlega á bannlista 20. maí 2025 með “17. viðskiptabannspakka Esb“. Vélfag var keyrt í gjaldþrot af utanríkisráðuneyti Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í samvinnu við Arion-banka. Héraðssaksóknari og Rúv þjónustuðu valdið. Norebo hafði eignast meirihluta hlutafjár í Vélfagi í ársbyrjun 2022 áður en Úkraínustríðið hófst þegar aðstæður í heiminum breyttust. Ivan Kaufmann keypti fyrirtækið, lichteneskur og svissneskur ríkisborgari, eiginmaður og faðir í Sviss, ríkisborgari á evrópska efnahagssvæðinu, réttlaus á Íslandi. Íslandsvinur frá 17 ára aldri þegar Ivan kom fyrst til landsins.
Ráðuneyti svertir mannorð
Fyrirsögn Rúv 25.11.2025 var: "Ráðuneytið tengdi Kaufmann við rússnesku öryggisþjónustuna.“ Þetta eru óræðar aðdróttanir í anda Kalda stríðsins. Ivan var bendlaður við skuggaflota Rússa, Rússa-njósnir, Pútinista. Ráðuneytið firrtist þegar Vélfag notaði reikning í Landsbanka eftir að Arion-banki hafði fryst bankareikninga félagsins. Af hverju þetta offors, taumlausar aðdróttanir, hálfsannleikur og hatur. Fimm starfsmenn Vélfags handteknir, jafnvel handjárnaðir frammi fyrir börnum. Alfreð Tulinius stjórnarformaður á hækjum eftir mjaðma aðgerð handtekinn af fimm óeinkennisklæddum lögreglumönnum er enn með réttarstöðu sakbornings. Mannorð Alfreðs fótum troðið. Börn Ivan Kaufmann uppnefnd rússneskar hórur á heimaslóð. Sjálfsagt hafa Kaja Kallas og der Leyen fengið fréttir til Brüssel. Kristrún Frostadóttir lýst sigri á upplýsingaóreiðu.
Helgi Seljan og Þorgerður á kústskafti
Skuggi Helga Seljan yfir klaka kropnum vötnum fylgir Toggu á kústskaftinu, fordæmdur maður eltur, dunar dátt í svellum, hélar andi á vör.Alþjóðlegum blæ brugðið yfir aðgerðir til heimabrúks til þess að klófesta eyfirska hátæknifyrirtækið og koma því í íslenskar hendur þar sem eru eitruð tengsl stjórnmála og viðskipta; Centra Teymið. “Mér var sagt að selja Íslendingi,“sagði Ivan í þætti með Frosta Logasyni. Fimm sinnum kom ÞKG skilaboðum áleiðis um sölu. Inga Sæland brá sér á kústskaftið sem auðvitað snart Ólafsfirðinga illa. Glæstasta fyrirtæki nokkru sinni að koma útfrá Ólafsfirði var eyðilagt. Viðvörun Ivans sláandi, skilaboð ráðherra: "Þú átt flott fyrirtæki, gefðu eiginmanni mínum." Fordæmalaus valdníðsla. Svona er Ísland í dag. Íslenskt réttarríki er fallið.
