Í nótt er búist við hvassviðri úr suðaustri um suðvestanvert landið með hviðum að 35 metrum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi, og jafnvel við Eyjafjöll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Veðurspáin gerir ráð fyrir að lægi nærri hádegi á morgun.
Varað er við lélegu skyggni í mikilli rigningu á suðaustanverðu landinu síðdegis á morgun og þá verða auknar líkur á grjóthruni, helst í Hvalnesskriðum.