Rigning eða súld með köflum á Norður- og Austurlandi en dregur hægt úr vætu þegar líður á daginn. Léttskýjað í öðrum landshlutum en líkur á þokulofti við norðurströndina. Hiti 6 til 18 stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi.
Svona hljóðar spá Veðurstofu Íslands. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að í dag og fram undir hádegi á sunnudag megibúast við hvössum vindstrengjum við fjöll á sunnanverðum Austfjörðum. Hviður geti náð allt að 25 metrum á sekúndu.
Sums staðar væta á morgun
Á morgun verður norðlæg eða breytileg átt, 3 til 8 metrar á sekúndu en norðvestan 8 til 13 austanlands framan af degi. Skýjað norðaustantil og sums staðar dálítil væta en annars bjart veður. Áfram líkur á þokulofti við norðurströndina. Hlýnar heldur í veðri.
Á mánudag og þriðjudag er útlit fyrir hægar breytilegar áttir. Bjart með köflum víða um land, en sums staðar skýjað á norðanverðu landinu. Líkur á stöku síðdegisskúrum. Hiti yfirleitt á bilinu 10 og 18 stig.
Á miðvikudag gera spár ráð fyrir dálítilli vætu í flestum landshlutum, en á fimmtudag er spáð frekar vætusömu veðri.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað, en norðvestan 8-13 og skýjað austanlands og með norðurströndinni fram eftir degi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna): Breytileg átt 3-10 og víða bjartviðri en skúrir á stöku stað síðdegis. Hiti víða 8 til 17 stig, hlýjast sunnanlands.
Á þriðjudag: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en líkur á síðdegisskúrum. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag: Breytileg átt og skýjað að mestu. Dálítil rigning eða skúrir í flestum landshlutum. Hiti 9 til 14 stig.
Á fimmtudag: Norðaustanátt og rigning, en úrkomuminna norðvestantil. Hiti 8 til 13 stig.
Á föstudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Rigning á austanverðu landinu, en þurrt að kalla vestantil. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast sunnanlands.