Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hefur fallist á kröfur eiganda atvinnuhúsnæðis í fjöleignarhúsi um bætur úr starfsábyrgðartryggingu ónefnds fasteignasala sem hafði milligöngu um kaup eigandans á húsnæðinu. Segir nefndin fasteignasalann hafa vanrækt skyldur sínar við söluna. Fljótlega eftir að eigandinn fékk eignina afhenta varð vart við leka víða í eigninni og að ástand hennar væri mun bágbornara en upplýst hefði verið um af seljanda og fasteignasalanum. Beið eigandinn töluvert fjárhagstjón af þessum sökum.
Vaknaði upp við vondan draum eftir að fasteignasalinn brást skyldum sínum