Útvarpsstjóri ríkisútvarpsins í Moldóvu hefur sagt af sér eftir að dómnefnd þess í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, greiddi atkvæði á skjön við vilja almennings þar.
Dómnefndin gaf Póllandi flest stig í keppninni, eða 12 stig, og Ísrael fékk 10 stig. Á sama tíma fengu nágrannalöndin Rúmenía þrjú stig og Úkraína ekkert. Niðurstaða dómnefndarinnar var mikið gagnrýnd á samfélagsmiðlum bæði í Rúmeníu og Moldóvu, auk þess sem menningarmálaráðherra Moldóvu krafðist skýringa. Rúmenía fékk 12 stig frá Moldóvu í símakosningunni.
Vlad Turcanu, útvarpsstjóri Teleradio Moldova, ríkissjónvarps Moldóvu, tilkynnti afsögn sína og sagði það einstakt og alvarlegt að dómnefndin hefði ekki tekið tillit til viðkvæmrar stöðu milli Moldóvu og nágrannanna Rúmeníu og Úkraínu.
„Afstaða okkar er ekki 0 stiga staða, og við berum einungis góðan hug og kærleika til Rúmeníu,“ sagði hann og bætti við að þó að hann hafi ekki ráðið hvernig nefndin greiddi atkvæði sé ábyrgðin hans á því sem gerðist.
Rúmenska lagið, sem hét Choke me (kæfðu mig), þótti sigurstranglegt í keppninni en hafnaði í þriðja sæti. Flytjandi lagsins, Alexandra Capitanescu, sagðist í færslu á Instagram ekki vera súr yfir niðurstöðu dómnefndarinnar. Hún hafi greitt atkvæði eins og henni hafi þótt best. „Það er ekki rétt að heil þjóð sé gerð ábyrg fyrir gerðum sjö persóna,“ sagði hún.
Ein úr dómnefndinni, Viktoria Cusnir, sagðist sjá eftir að hafa samþykkt að skipa hana. Niðurstaðan hefði ekki átt að bera með sér óvild gagnvart Rúmeníu. Þá hvatti Satoshi, fulltrúi Moldóvu í keppninni, til þess að ala ekki á hatri af þessum sökum. Vinátta ríkti milli landanna og svo yrði áfram.