Útför Haraldar Noregskonungs hafin

Útför Haraldar Noregskonungs hafin

Útför Haraldar Noregskonungs hafin

Masud Gharahkhani, forseti norska stórþingsins, minnist nú konungsins. Í kjölfarið talar forsætisráðherra landsins, Jonas Gahr Støre.

Einnar mínútu þögn er nú lokið og athöfnin hefst. Það má fylgjast með henni í spilaranum hér að ofan.

Norska konungshöllin hefur gefið út dagskrána í athöfninni sem fer að hefjast í dómkirkjunni í Osló. Hana er hægt að finna hér og hafa við höndina næsta klukkutímann:
Dagskrá í dómkirkjunni

Hákon og Mette Marit voru gefin saman í dómkirkjunni árið 2001. Kirkjan varð sömleiðis táknmynd samstöðu og vonar í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Osló og Útey 2010, segir Anna Lilja Þórisdóttir sem lýsir útsendingunni hér að ofan.

Lögreglan í Osló áætlar að um 53 þúsund manns hafi staðið meðfram Karls Jóhannsgötu á meðan kista Haraldar var borin þar hjá og að um 180 þúsund hafi verið í miðborg Osló.

Boðsgestir eru flestir komnir í dómkirkjuna í Osló þar sem útför Haraldar hefst klukkan 11. Athöfnin hefst á einnar mínútu þögn um landið allt þar sem Norðmenn þagna og minnast konungsins.

Á kortinu má sjá leiðina sem kista Haraldar fer í dag. Fyrst frá konungshöllinni í dómkirkjuna þar sem athöfn hefst innan skamms. Þaðan verður kista konungs flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Í kirkjunni er grafhýsi þar sem foreldrar Haraldar og amma hans og afi hvíla. Þar kemur Haraldur sömuleiðis til með að hvíla. Ekki verður sýnt frá þessum hluta athafnarinnar.

Marius Borg Høiby, sonur Mette Marit drottningar, gengur ekki með fjölskyldu sinni líkfylgdina. Hann er mættur í dómkirkjuna.

Íslenski fáninn var dreginn í hálfa stöng við sendiráð Íslands í Ósló í morgun.

Þau Hákon og Mette Marit eiga tvö börn saman, Ingiríði Alexöndru, sem varð krónprinsessa við andlát afa síns, og Sverri Magnús. Þau fylgja afa sínum í dag.

Þegar Hákon og Mette Marit kynntust átti hún fyrir soninn Marius Borg Høiby. Hann fær að fylgja Haraldi í dag en gengur ekki með fjölskyldu sinni. Hann afplánar nú fangelsisdóm fyrir nauðgun og önnur ofbeldisbrot.

Nokkuð hefur gustað um norsku konungsfjölskylduna undanfarið sem virðist hafa dregið úr fylgi almennings við konungdæmið á mjög skömmum tíma. Sögulega séð hafa átta af hverjum tíu Norðmönnum stutt það en fylgið féll niður í sextíu af hundraði í könnun Norstat fyrir NRK fyrr á þessu ári.

Haraldur konungur sjálfur fékk hins vegar einkunnina 9,2, Sonja drottning 8,6 og Hákon ríkisarfi 7,9. Hins vegar hlaut Mette Marit eiginkona hans einkunnina 3,7, helmingi lægri en hún fékk áður en ljóstrað var upp um tengsl hennar og fundi með bandaríska kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein.

Sonju drottningu, ekkju Haraldar, er ekið í bíl á eftir kistunni. Árið 1968 gekk Haraldur að eiga jafnöldru sína, Sonju Haraldsen. Ráðahagurinn vakti talsvert uppnám enda Sonja af alþýðuættum. Ólafi konungi, stjórnmálamönnum og mörgum Norðmönnum þótti það hin mesta ósvinna að tilvonandi konungur veldi slíka konu. Þau héldu sambandinu leyndu lengi vel.

Haraldur stóð fast við sinn keip og almenningsálitið snerist fljótt þeim Sonju í vil eftir níu ára bið eftir formlegu hjúskaparleyfi. Konungshjónin hafa verið afskaplega vinsæl og notið mikillar virðingar.

Í bílnum er líka Mette Marit, ný drottning Noregs, eiginkona Hákons. Hún hefur glímt við heilsubrest og undirgekkst lungnaígræðslu fyrir skömmu.

Í líkfylgdinni má sjá mörg kunnugleg andlit. Vilhjálmur krónprins í Bretlandi, Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og Alexander Stubb, forseti Finnlands eru meðal þeirra sem ganga svartklædd í kjölfar kistu Haraldar.

Hér má sjá nokkrar myndir frá líkfylgdinni sem lagði af stað klukkan 10.

„Ungir sem aldnir hafa klifrað í trjám og í höggmyndum til að sjá betur yfir fólksfjöldan. Fólk hefur einnig gripið til þess ráðs að nota stiga,“ segir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Fallbyssuskot heyrast undir tónlistinni sem leikin er undir líkfylgdinni.

„Ef hægt er að tala um að kliður hafi verið í fólkinu sem hefur komið sér saman við Karls Jóhanns-götu endilanga þá sló svo sannarlega þögn á hópinn um leið og líkfylgdin hófst,“ lýsir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Veðrið í Osló skartar sínu fegursta þegar þjóðin kveður konungs sinn. Börn Hákons Noregskonungs fylgja afa sínum sömuleiðis.

Drottningunum tveimur, Sonju ekkju Haraldar, og Mette Marit, eiginkonu Hákons, er ekið í bíl eftir kistunni.

Kistan er hjúpuð norska konungsfánanum upplýsir Anna Lilja Þórisdóttir, sem lýsir útförinni í spilaranum hér að ofan.

Eins og sjá má í spilaranum hér að ofan hefst dagskráin á réttum tíma. Á slaginu klukkan 10 var gengið af stað með kistu konungs á vagni. Hákon Noregskonungur er meðal þeirra sem gengur með kistu föður síns.

Eitt af síðustu embættisverkum Haraldar var einmitt í dómkirkjunni þar sem útför hans fer senn fram. Þar tók hann þátt í minningarathöfn um þau sem létust í hryðjuverkaárásunum í Osló og Útey fyrir 15 árum. Minningarathöfnin var 22.júlí síðastliðinn.

Senn líður að því að Haraldur yfirgefi norsku konungshöllina í síðasta sinn. Kista hans hefur staðið þar frá 1.september. Líkfylgdin verður eftir Karls Jóhannsgötu og er um 1,2 kílómetra löng.

Við sýnum beint frá útför Haraldar Noregskonungs í sjónvarpi frá klukkan 9.50. Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður er tilbúin að lýsa því sem fyrir augu ber. Anna Lilja þekkir vel til sögu kóngafólks um alla Evrópu svo lýsingin verður í öruggum höndum.

Bæði er hægt að horfa á útsendinguna í sjónvarpi og í spilaranum hér að ofan.

En það eru ekki allir svartklæddir í tilefni dagsins. Gefum Grétari Þór orðið:

Norski þjóðbúningurinn sker sig úr annars dökk-eða svartklæddu mannhafinu við Karls Jóhanns-götu.

Ellen Margrethe Ulving er ein þeirra sem klæddi sig upp við þetta tilefni. Hún segir norska búninginn, eða bunad, viðeigandi við öll formleg tilefni þar á meðal jarðarfarir. „Ekki gat ég mætt í gallabuxum,“ segir hún, spurð að því hvers vegna hún valdi þjóðbúninginn í dag.

En það eru ekki bara þjóðhöfðingjar sem mæta til leiks í dag. Á gestalistanum er einnig að finna nafn Marthe Kristine Paulsen, 36 ára konu frá Kviteseid. Hún var 13 ára þegar hún hitti Harald Noregskonung í fyrsta og eina skiptið. Þá hafði hún, ásamt öðrum börnum, tjáð sig um ofbeldi sem þau höfðu orðið fyrir á heimilum sínum. Haraldur bauð börnunum í heimsókn í höllina og fékk að heyra sögu Paulsen. Í kjölfarið sagði hann að ofbeldið væri ekki henni að kenna, orð sem Paulsen sagði hafa bjargað sér.

Hún sendi samúðarkveðju við andlát Haraldar og þakkaði honum fyrir þessu hughreystandi orð. Henni þótti leitt að hafa aldrei getað þakkað honum í eigin persónu, en sagðist í viðtali við NRK, norska ríkissjónvarpið, að hún hefði bæði verið hissa og glöð þegar hún fékk boðskort í útförina.

Hér má lesa umfjöllun NRK um málið.

Prúðbúnir þjóðarleiðtogar eru mættir til Osló til að fylgja Haraldi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Og hvað vitum við þá um hverjir mæta og hverjir ekki?

Á sunnudag boðað Margrét Danadrottning forföll af heilsufarsástæðum en Friðrik Danakonungur og Mary drottning mæta.

Sænska konungsfjölskyldan mætir öll og spænsku konungshjónin sömuleiðis. Hollensku og belgísku konungshjónin mæta sömuleiðis.

Vilhjálmur krónpris í Bretlandi mætir og Anna systir Karls konungs sömuleiðis. Hefðin býður að konungur eða drottning í Bretlandi mæti jafnan ekki á viðburði sem þessa en sendi sína næstráðendur í sinn stað.

Þannig mætti Karl, þá krónprins, til útfarar Ólafs Noregskonungs, í stað móður sinnar.

Það er í nógu að snúast hjá ráðamönnum heims. Donald Trump mætir til að mynda ekki. Landsfundur Repúblikanaflokksins verður haldinn í Texas í vikunni og Trump tekur henn fram yfir að þessu sinni.

Þegar Ólafur Noregskonungur var borinn til grafar 1991 mætti Dan Quayle, varaforseti George H.W. Bush, fyrir hönd bandarískra stjórnvalda.

Forseti Finnlands, Alexander Stubb, hefur boðað komu sína og sem og forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier.

Sætafjöldi er takmarkaður og um tíma leit ekki út fyrir að allir þingmenn á norska þinginu fengju boð. Það fengu þeir þó á endanum. Fyrrum forsætsráðherrum er einnig boðið, þeirra á meðal Gro Harlem Brundtland og Ernu Solberg.

Mikil öryggisgæsla verður í höfuðborginni Osló. Þúsundir lögreglu- og hermanna, norskra, danskra og sænskra, verða til að gæta öryggis enda búist við að tugþúsundir safnist saman í miðborginni.

Yfirvöld í Noregi ákváðu í öryggisskyni að birta ekki lista yfir þá þjóðarleiðtoga sem sækja útförina en öllum löndum sem eiga sendifulltrúa í Noregi er boðið að senda gest til athafnarinnar og að það sé hverju þeirra í sjálfvald sett að upplýsa hvaða ráðamenn verði viðstaddir.

NRK tók saman frétt um hverjir mæta.

Danska ríkisútvarpið greinir frá því að fjölmargir Norðmenn hafi tekið sér frí frá skóla og vinnu í dag til að fylgjast með útför Haraldar.

Grétar Þór segir meirihluta viðstaddra á götum úti klæðast svörtu í tilefni dagsins.

„ Þrátt fyrir mikinn mannfjölda er þó eitt sérkenni á andrúmsloftinu í miðborginni og það er þögnin,“ segir Grétar Þór Sigurðsson, fréttamaður, sem er í miðborg Osló. Hér má sjá nokkrar myndir frá morgninum.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, verða við útför Haraldar Noregskonungs. Halla segir Harald fimmta Noregskonung hafa verið góðan þjóðhöfðingja sem Norðmönnum þótti afar vænt um. Í viðtali við fréttastofu daginn sem Haraldur lést, 28.ágúst, sagði Halla meðal annars:

„Það er alveg ljóst að norska þjóðin er í sorg í dag og við finnum til með frændum okkar Norðmönnum á svona degi. Þarna er fallinn frá afskaplega góður þjóðhöfðingi sem þjóðinni þótti vænt um. Ég skynjaði líka að okkur utan landamæranna þótti sérstaklega vænt um hann og sannarlega á það við um mig. Þetta var einstaklega vitur, hlýr maður með góða kímnigáfu sem sinnti þjóð sinni vel og var elskaður af henni,“ segir Halla í viðtali við fréttastofu.

Komið hafi á óvart hve stutt var í kímnigáfuna hjá Haraldi.

„Það var svo fallegt í hans fari. Við vorum að ræða flókin mál, flókna stöðu í heiminum, áskoranir, en einhvern veginn var stutt í brosið og hláturinn og mennskuna og ég fann það svo hvað hans einlæga ást á sinni þjóð var honum alltaf efst í huga. Ég fann líka fyrir þessari ást í garð Íslendinga.“

„ Fólk er tekið að streyma í miðborgina og nú þegar eru þúsundir við Karls Jóhanns-götu. Kistu konungs verður ekið sem leið liggur um götuna á eftir, frá konunglegu kapellunni í konungshöllinni yfir í dómkirkju Óslóar,“ segir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Fréttamaður okkar, Grétar Þór Sigurðsson, er búsettur í Osló. Eins og flestir íbúar borgarinnar finnur hann fyrir viðbúnaðinum í borginni. Gefum Grétari orðið:
„ Öryggisgæsla er eins og gefur að skilja mikil í miðborg Óslóar. Stór hluti hennar er lokaður fyrir bílaumferð. Lögregla hefur sett upp nokkur hlið inn í miðborgina þar sem leitað er í töskum gangandi vegfaranda en þúsundir lögreglumanna standa vaktina í dag.“

Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman sjónvarpsfrétt með svipmyndum frá ævi Haraldar þegar hann lést 28.ágúst. Fréttina má sjá hér að ofan.

Haraldur varð konungur í Noregi 1991 þegar faðir hans, Ólafur V, lést. Hann var því konungur í rúm 35 ár og fylgdi þjóð sinni gegnum þykkt og þunnt.

Haraldur fæddist 21. febrúar 1937. Hann var fyrsti ríkisarfinn sem fæddist í Noregi í um það bil 600 ár, á Skaugum í Asker. Móðir Haraldar, Märtha krónprinsessa, flúði með hann og systur hans til Svíþjóðar og loks til Bandaríkjanna þegar Þjóðverjar réðust inn í Noreg.

Faðir Haraldar og Hákon VII., afi hans, bjuggu í Lundúnum þar til heimsstyrjöldinni lauk. Fjölskyldan sneri aftur til Noregs í júní 1945, við mikinn fögnuð landsmanna. Við andlát Hákons VII. varð Haraldur ríkisarfi þegar Ólafur tók við krúnunni.

Haraldur þótti alúðlegur og hlýr konungur ef marka má fréttir af honum, með ríka kímnigáfu og framsækinn meðal annars á sviði mannréttindamála. Hann vakti heimsathygli með ræðu sem hann hélt fyrir tíu árum þar sem hann talaði hástöfum meðal annars fyrir réttindum hinsegin fólks og innflytjenda.

Hann er sagður hafa litið á það sem sitt hlutverk að hughreysta þjóðina þegar á móti blés, ekki síst eftir hryðjuverkin í Osló og Útey 2011. Haraldur heimsótti allar byggðir Noregs í valdatíð sinni og fór í fjölda heimsókna erlendis.

Markús Þórhallsson skrifaði um æviágrip Haraldar þegar hann féll frá. Það má lesa hér að neðan.

1900 hermenn gengu fylktu liði eftir Karl Jóhannsgötu í Osló í morgun að viðstöddu fjölmenni sem fylgdist með á götum úti. Í myndskeiðinu hér að ofan má sjá brot frá morgninum.

Formleg dagskrá er þegar hafin. Þúsundir hermanna ganga fylktu liði eftir götum Osló. Hér eru svo helstu tímasetningar:

Kl. 10 - Kista Haraldar verður flutt frá konungshöllinni og yfir í dómkirkjuna í Osló. Gestir koma sér fyrir í dómkirkjunni.

Kl. 10.42 - Kistan verður borin inn í dómkirkjuna.

Kl. 11.00 - Athöfnin hefst með einnar mínútu þögn um landið allt.

Kl. 12.00 - Athöfninni í dómkirkjunni lýkur. Kista konungs verður flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Í kirkjunni er grafhýsi þar sem foreldrar Haraldar og amma hans og afi hvíla. Þar kemur Haraldur sömuleiðis til með að hvíla. Ekki verður sýnt frá þessum hluta athafnarinnar.

Kl. 13.20 - Fánar dregnir að húni sem marka endalok útfararinnar.

Kl. 13.25 - Konungsfjölskyldan yfirgefur Akerhus kastalakirkjuna.

Kl. 13.35 - Konungsfjölskyldan mæti í konungshöllina.

Kl. 14.45 - Konungsfjölskyldan veifar til mannfjöldans af svölum konungshallarinnar.

Í spilaranum hér að ofan má fylgjast með útsendingu NRK, norska ríkissjónvarpsins, í allan dag. Við hefjum svo útsendingu í sjónvarpi sömuleiðis kl. 9.50 og fram yfir hádegið. Anna Lilja Þórisdóttir lýsir herlegheitunum.

Haraldur Noregskonungur verður lagður til hinstu hvílu í Osló í dag. Mikll viðbúnaður er í höfuðborg Noregs. Ég heiti Birta Björnsdóttir og ætla að lýsa hér því sem fyrir augu ber í Noregi í dag. Fjöldi fyrirmenna er væntanlegur í útförina og Norðmönnum þótti vænt um konunginn sinn.

#hafin #haraldar #noregskonungs #útför


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-09-09-utfor-haraldar-noregskonungs-hafin-486490

📰 Aðrar fréttir

Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 0
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
The country's populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" hisb Serbian Progressive Party (SNS) has lost.
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 0
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
📅 25.10.2026 👁️ 0
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
📅 25.10.2026 👁️ 0
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
📅 25.10.2026 👁️ 1
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
📅 25.10.2026 👁️ 0
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
📅 25.10.2026 👁️ 2
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
📅 25.10.2026 👁️ 2
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum lokað í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 1
Kjörstöðum lokað í Serbíu
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 2
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 2
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Long queues after power surge at Stansted Airport
📅 25.10.2026 👁️ 1
Long queues after power surge at Stansted Airport
A passenger says she was trapped in a corridor at the airport for 90 minutes.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 2
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 2
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 3
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 3
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 1
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning will remain until Sunday evening as severe weather continues to batter the UK.
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 2
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 2
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 2
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 3
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
📅 25.10.2026 👁️ 3
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjald­búðir hafa risið í Lissabon og Porto und­an­farnar vikur vegna hús­næð­is­verðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
📅 25.10.2026 👁️ 2
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 3
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
📅 25.10.2026 👁️ 3
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
He will be observed to evaluate whether his "psychiatric health is compatible with pursuing his interrogation", authorities said.
Island Hopping in Greece and where to base yourself
📅 25.10.2026 👁️ 3
Island Hopping in Greece and where to base yourself
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
📅 25.10.2026 👁️ 2
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
📅 25.10.2026 👁️ 3
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
Serbia is heading to the polls as a student movement attempts to oust longtime populist leader Aleksandar Vučić.
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
📅 25.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
Mynd Ef marka má Eyrbyggja sögu kemur Þórólfur Mostrarskegg hingað út rét
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
📅 25.10.2026 👁️ 5
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Vindorkugarðar áformaðir víða um land Fyrsta vind­orku­verið á Íslandi hefur verið gang­sett og fleiri eru áformuð. Yfir fjöru­tíu hug­myndir eru um v...
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
Kjörsókn hefur verið mikil í Serbíu en þar fara þingkosningar fram í dag.Fyrrum forseti landsins, Aleksandar Vucic, rauf þing í september og boðaði ti...
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
📅 25.10.2026 👁️ 4
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
Five people have been injured when their sailing yacht ran aground near Órzola harbour in northern Lanzarote this morning, Sunday, leaving four of the...
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...