Sameinuðu arabísku furstadæmin tilkynntu í dag að þau ætluðu að draga sig úr OPEC og að ákvörðunin tæki gildi 1. maí. Ákvörðunin þykir vera mikið högg fyrir bandalagið en hvað er OPEC?
OPEC stendur fyrir Organization of the Petroleum Exporting Countries. Þetta eru samtök ellefu olíuríkja, nú þegar Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa dregið sig úr þeim, sem framleiða tæplega 40 prósent af hráolíu heimsins og ráða yfir tæplega 80 prósent olíuforða heimsins.
Samtökin voru stofnuð 14. september 1960 af Íran, Írak, Kúveit, Sádi-Arabíu og Venesúela, til að verja hagsmuni helstu olíuframleiðslulanda heims með því að samhæfa framleiðslu til að tryggja stöðugar tekjur fyrir aðildarríki. Samtökin samanstanda einnig af Alsír, Lýðveldinu Kongó, Miðbaugs-Gíneu, Gabon, Líbíu, og Nígeríu.
Samtökin undirrituðu samning við tíu olíuframleiðslulönd til viðbótar 2016 um að stofna OPEC+. Ástæðan var lækkandi olíuverð. Rússland, Mexíkó, Kasakstan, Óman, Aserbaísjan, Malasía, Bahrein, Brúnei, Suður-Súdan og Súdan mynda OPEC+.
Yfirlýst markmið OPEC er að aðildarríkin „tryggi stöðugleika á olíumörkuðum til að tryggja skilvirkt, hagkvæmt og reglulegt framboð olíu til neytenda, stöðugar tekjur fyrir framleiðendur og sanngjarna ávöxtun fjármagns fyrir fjárfesta í olíuiðnaðinum.“
15 prósent af framleiðslugetu OPEC hverfur
Sameinuðu arabísku furstadæmin voru þriðji stærsti olíuframleiðandi í OPEC. Búist er við því að brotthvarf þeirra úr samtökunum veiki þau töluvert. Saul Kavonic, yfirmaður orkurannsókna hjá fjármálaþjónustufyrirtækinu MST Financial, sagði fréttir dagsins vera byrjunina á endinum fyrir bandalagið.
„Með brotthvarfi Sameinuðu arabísku furstadæmanna missir OPEC um 15 prósent af framleiðslugetu sinni og eitt hlýðnasta aðildarríkið.“
Brotthvarf Sameinuðu arabísku furstadæmanna telst vera sigur fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hann hefur verið gagnrýninn á samtökin og sakað þau um að svindla á heimsbyggðinni með því að blása upp olíuverð með því að halda aftur af framleiðslu.
Trump staðfesti í síðustu viku að stjórnvöld þar hefðu rætt við stjórnvöld í furstadæmunum um að fjárhagslega líflínu þar sem seðlabankar ríkjanna tveggja gætu komið sér saman um að skiptast á upphæðum af gjaldmiðli hvors annars versni ástandið í Mið-Austurlöndum.
Í yfirlýsingu frá orkumálaráðuneyti furstadæmanna segir að útganga ríkisins úr OPEC veiti því meiri sveigjanleika til að bregðast við nýrri öld orku í samræmi við „langtíma sefnumótandi, efnhagaslega framtíðarsýn.“