Tveir 14 ára drengir og einn 13 ára drengur í Bretlandi fengu ekki fangelsisdóm þrátt fyrir að hafa verið sakfelldir fyrir hópnauðganir gegn tveimur unglingsstúlkum, en þeir tóku ódæðið sjálfir upp meðan þeir hlógu og hvöttu hvorn annan áfram.
Málið hefur vakið mikla reiði í Bretlandi eftir að dómarinn, Nicholas Rowland við, sagði við drengina við dómsuppkvaðningu:
„Enginn ykkar þarf að fara í fangelsi í dag.“
Drengirnir, sem allir eru úr svokölluðu „ferðasamfélagi“ (traveller community), sem er orð sem notað er yfir sígauna, voru sakfelldir í mars eftir fimm vikna réttarhöld. Tveir þeirra voru jafnframt sakfelldir fyrir að taka ólöglegar kynferðislegar myndir af barni.
Lokuðu stúlku inni í undirgöngum og nauðguðu henni meðan þeir hlógu
Fyrsta árásin átti sér stað í nóvember 2024 þegar 15 ára stúlka hafði farið að hitta einn drengjanna eftir samskipti á Snapchat. Hann lokkaði hana með sér að afskekktum undirgöngum og þar birtust tveir vinir hans og nauðguðu henni allir.
Stúlkan lýsti því síðar fyrir dómi að hún hefði verið skelfingu lostin, upplifað sig innikróaða og bjargarlausa og óttast að henni yrði hent í ána ef hún neitaði.
Árásin stóð yfir í um 90 mínútur. Drengirnir skiptust á að misnota hana kynferðislega meðan þeir hlógu og tóku upp myndbönd. Á einu myndbandinu heyrist einn þeirra segja: „Don’t film it mush.“
Eftir árásina spurðu þeir stúlkuna af hverju hún væri svona döpur og keyptu síðan gosdrykk handa henni til að hressa hana við, að eigin sögn, áður en þeir skildu hana eftir við strætóskýli.
Hópnauðgun með hnífi og rifnum fötum
Aðeins tveimur mánuðum síðar réðust tveir drengjanna ásamt öðrum 13 ára dreng á aðra stúlku, þá 14 ára gamla. Þeir neyddu hana til að skilja bæði símann sinn og AirTag eftir í verslun áður en þeir drógu hana út á akur.
Þar hótuðu þeir að drepa hana ef hún reyndi að flýja. Einn eldri drengjanna var með hníf og notaði hann til að skera göt á föt hennar áður en hópnauðgunin hófst.
Drengirnir tóku aftur upp árásina á síma sína meðan þeir hvöttu hvorn annan áfram til að niðurlægja stúlkuna meira með hverri mínútunni. Þegar þeir fóru sat hún eftir í rifnum fötum og reyndi að leita sér hjálpar.
Myndböndum af árásinni var síðar dreift á samfélagsmiðlum og stúlkan varð fyrir einelti þar sem aðrir kölluðu hana meðal annars „slag“ eða druslu.
Dómarinn vísaði í lága greind, ADHD og „takmarkaðan skilning á samþykki“
Þrátt fyrir alvarleika brotanna var drengjunum skikkað að fara í svokallað samfélagsúrræði í stað fangelsis.
Fyrsti drengurinn, nú 15 ára, var dæmdur í þrjú ár í slíku úrræði eftir að hafa verið sakfelldur fyrir tvær nauðganir og að taka kynferðislegar myndir af barni. Annar 15 ára drengur fékk sambærilegan dóm fyrir sex nauðganir. Sá yngsti, nú 14 ára, fékk 18 mánaða úrræði fyrir tvær nauðganir.
Dómarinn sagði að drengirnir væru mjög ungir, með óvenju lága greind, takmarkaðan skilning á samþykki og létu auðveldlega undan hópþrýstingi jafningja. Hann hrósaði þeim einnig fyrir hegðun sína meðan á réttarhöldunum stóð.
Um einn drenginn sagði dómarinn að hann væri með ADHD og langvarandi kvíða. Annar væri í neðsta eina prósentinu á sínum aldri hvað varðar greindarvísitölu og einnig með ADHD. Sá þriðji hefði takmarkaða vitsmunalega getu og takmarkaðan skilning á samþykki.