Í tilkynningu kemur fram að umferðarstýring verði á svæðinu meðan á framkvæmd stendur.
„Athugið að hliðarvegir verða lokaðir á meðan verið er að malbika fram hjá þeim. Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og aka með gát,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Vinna hefur farið fram á Suðurlandsvegi síðustu daga, fyrst við Hólmsá og svo í gær við Hveragerði. Miklar tafir mynduðust við Hólmsá á mánudag.