Lögreglan á Norðurlandi vestra stöðvaði bifreið við hefðbundið umferðareftirlit síðastliðið fimmtudagskvöld. Um var að ræða bifreið á suðurleið sem var stöðvuð vegna gruns um of hraðan akstur.Í tilkynningu frá lögreglu segir:„Í bifreiðinni voru þrír erlendir ríkisborgarar. Ökumaður bifreiðarinnar framvísaði ökuskírteini en ekki var unnt að bera kennsl á aðra í bifreiðinni á vettvangi þar sem þeir kváðust ekki vera með skilríki meðferðis.”
Umferðareftirlit tók óvænta stefnu – Þrjú handtekin og fá sjö ára endurkomubann