Fjöldi erlendra ferðamanna hefur komið til landsins til að taka þátt í vikunni. „Vefa á borðvefstól“ var eitt af námskeiðum vikunnar.
Á bænum Hrafnaseli í Flóanum var eitt af fjölmörgum námskeiðum ullarvikunnar en þar voru þátttakendurnir, allt konur, að „Vefa á borðvefstól“.
„Íslenska ullin er oft uppistaðan og svo notum við eitt og annað sem skreytir,” segir Elísabet Steinunn Jóhannsdóttir Sörensen, kennari á námskeiðinu.
Íslenska sauðkindin, ullin og vinnsla hennar eru í aðalhlutverki þegar ullarvikan er annars vegar.
„Þetta er fjórða skiptið sem við höldum ullarviku og hún stækkar í hvert sinn. Það er mikill áhugi á náttúrulegum efnum. Fólk vill komast í ullina okkar og það koma útlendingar hérna í hrönnum til þess að taka þátt í þessu með okkur og til þess að kynnast þessu íslenska hráefni okkar,” segir Elísabet Steinunn.
En hvað er svona gott við ullina?
„Hún er mjúk, hún er hlý, hún er með fallega liti og hún er okkar. Þetta var gjaldmiðillinn okkar hérna fyrir nokkur hundruð árum og hún heldur verðgildi sínu í handverki algjörlega,” segir Elísabet Steinunn alsæl með íslensku ullina.
En hvað sögðu þátttakendur á námskeiðinu, voru þeir ekki ánægðir?
„Jú, en maður þarf að einbeita sér rosalega. Maður er allur að svitna og svoleiðis. Maður gerir eitthvað sem þú sérð strax hvað þú ert að gera, að það kemur eitthvað út úr því og þú sérð náttúrulega líka þegar þú gerir vitlaust,” segir Elena Teuffer þátttakandi á námskeiðinu.
„Þetta er virkilega skemmtilegt og gaman að læra að vefa og búa til sitt eigið viskastykki, trefil eða hvað sem er. Íslenska ullin er einstök. Ég prjóna mjög mikið og er mikið í handavinnu og ég held að íslenska ullin sé bæði mín fyrsta ást og líka bara að mér finnst langskemmtilegast að vinna með hana,” segir Valgerður Guðrún Halldórsdóttir þátttakandi á námskeiðinu.
Ullarvikunni lýkur formlega á morgun, laugardaginn 3. október, með ullarmarkaði í félagsheimilinu Þingborg í Flóahreppi.