Samkvæmt heimildum fréttastofu sást til Ice Spice á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun, fimmtudag, þar sem hún var að koma úr flugi frá New York, heimaborg sinni.
Seinna um kvöldið sást til hennar á Michelin-veitingahúsinu OTO við Hverfisgötu í Reykjavík.
Rapparinn, sem réttu nafni heitir Isis Naija Gaston, birti síðan speglamynd af sér af baðherbergi veitingahússins í hringrásinni á Instagram í gærkvöldi.
Erindi ferðalagsins liggur ekki fyrir.
Ice Spice kom eins og stormsveipur inn í bandarísku drill-senuna haustið 2022 þegar hún gaf út lagið „Munch (feelin' U)“. Hefur hún síðan þá gefið út fjölda smella sem ratað hafa á hina ýmsu topplista.
Þá hefur hún meðal annars gefið út lög með Nicki Minaj, Central Cee, Lil Yachty og Pnk Pantheress.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.