Þann 15. september, klukkan tíu að morgni að staðartíma, fóru norska ríkislögreglan, PST, og norska öryggislögreglan, Kripos, fylktu liði í höfuðstöðvar norska fjarskiptafyrirtækisins Telenor í Bærum, skammt frá Osló, í þeim tilgangi að gera þar húsleit. Leitin snerist aðallega um að afla gagna tengdum starfsemi fyrirtækisins í Mjanmar.
Á blaðamannafundi beggja embætta voru sakargiftir upplýstar, sem eru tvenns konar og heyra undir sitt hvort embættið. Kripos tiltók þátttöku í glæpum gegn mannkyni í Mjanmar frá því herforingjastjórnin rændi völdum í febrúar 2021 þar til starfsemin var seld í mars 2022. Þátttakan hafi falist í að deila gögnum um viðskiptavini að beiðni herforingjastjórnar á sama tíma og hún stundaði ofsóknir gegn íbúum.
PST tiltók síðan að þegar starfsemin var seld fylgdi eftirlitsbúnaður fyrirtækisins með til afnota fyrir nýja eigendur. Reglur um viðskiptaþvinganir kveði á um að ekki sé hægt að selja slíkan búnað án leyfis frá norskum yfirvöldum, í þessu tilviki utanríkisráðuneytinu. Ekkert slíkt leyfi lá fyrir.
Telenor neitar því ekki að hafa gert það sem það er sakað um. Fyrirtækið segist ekki hafa haft neinna annarra kosta völ en að afhenda þessar upplýsingar til að tryggja öryggi starfsmanna sinna. Það hefur heitið samvinnu við lögreglu í rannsókn málsins og að öll gögn sem hún færi fram á verði afhent. Thomas Midteide forstöðumaður fyrirtækjasviðs Telenor svaraði fyrir þetta daginn sem húsleitin var gerð og sagði fyrirtækið líka hafa orðið fyrir árásum.
„Herinn réðst á okkur, eignir okkar voru sprengdar, einn af starfsmönnum okkar var skotinn til bana í óeirðunum þarna. Þetta var erfitt og hræðilegt og á eftir að fylgja Telenor um aldur og ævi,“ segir Midteide.
Þetta síðastnefnda eru orð að sönnu, á marga vegu.
Telenor á sér yfir 170 ára sögu, var lengi ríkisfyrirtæki og er enn þá í meirihlutaeigu norska ríkisins. Nánar má fræðast um fyrirtækið hér að neðan.
Telenor var ekki ókunnugt fjarskiptarekstri í Asíu þegar fyrirtækið hóf starfsemi í Mjanmar 2014, eftir að hafa árið áður fengið leyfi til reksturs á fjarskiptaþjónustu í 15 ár að loknu umsóknarferli. Þremur árum áður hafði herinn látið af völdum 2011 eftir 23 ára valdatíð og yfirvöldin sem tóku við unnu að því að byggja upp innviði, þar á meðal síma- og netkerfi. Allt gekk vel til að byrja með. Milljónir íbúa fengu aðgang að neti og farsíma sem höfðu aldrei fengið það áður, sem stuðlaði að auknu og virku lýðræði. Á fimm árum varð Telenor meðal stærstu fjarskiptafyrirtækja Mjanmar, með um 19 milljónir viðskiptavina og hafði þá auðvitað yfir að ráða viðkvæmum persónuupplýsingum um þetta fólk.
Þó að herforingjastjórnin hafi ekki verið við völd í Mjanmar þá stýrði herinn samgöngu- og fjarskiptaráðuneytinu. Þegar bera fór á átökum milli stjórnarhersins og vopnaðra hópa 2019 fyrirskipaði herinn að lokað yrði fyrir netsamband í nokkra mánuði á ákveðnum stöðum. Þetta var svo aftur gert 2020. Í báðum tilvikum varð Telenor við því.
Þann 1. febrúar 2021 rændi herinn völdum í Mjanmar og við það urðu kröfur hans til Telenor alvarlegri. Nú var þess krafist að Telenor nýtti eftirlitsbúnað sinn til að fylgjast með viðskiptavinum sínum. Í júlí það ár tilkynnti Telenor að starfsemin yrði seld af öryggisástæðum. Kaupendurnir voru fjárfestingahópur sem kallast M1 og er undir stjórn Mikati-fjölskyldunnar sem er sú ríkasta í Líbanon. Najib Mikati var meðal annars forsætisráðherra og var kærður fyrir spillingu 2019. Salan gekk í gegn í mars 2022.
Á fimmta hundrað mannréttindahópar í Mjanmar lýstu strax yfir áhyggjum af því að við söluna kæmust gögn um viðskiptavini Telenor í hendur herforingjastjórnarinnar. Þau skrifuðu opið bréf til Ernu Solberg þáverandi forsætisráðherra, Sigve Brekke forstjóra Telenor og konungsfjölskyldunnar um að stöðva söluna. Annars yrði fjöldi mannslífa í hættu.
Brekke sagði strax þá í viðtali við norska ríkisútvarpið að fyrirtækið yrði að fara eftir staðbundnum fyrirmælum yfirvalda á sama tíma og tryggja þyrfti öryggi starfsmanna og viðhalda þeim gildum sem fyrirtækið stæði fyrir. „Við erum með 730 starfsmenn hjá fyrirtækinu í Mjanmar og þeim ber skylda til að veita þá þjónustu sem þeir eiga að veita,“ sagði hann þá. Hann tjáði sig ekki frekar efnislega.
Ráða má af umfjöllun norska ríkisútvarpsins, NRK, frá því í fyrra að þegar þessi orð féllu hafi Telenor þegar látið herforingjastjórnina fá gögn um viðskiptavini sína.
Í þeirri umfjöllun kom málið fyrst upp á yfirborðið og var vísað í gögn sem NRK hafði undir höndum. Í skjölunum kemur fram að herforingjastjórnin vildi nýta upplýsingarnar til að dæma fólk í fangelsi. Meðal þeirra sem stjórnin fékk upplýsingar um var Aung San Suu Kyi nóbelsverðlaunahafi sem var leiðtogi Mjanmar þegar herinn rændi völdum.
Fyrsta beiðnin frá herforingjastjórninni barst aðeins tveimur dögum eftir valdaránið. Gögnin sýna yfir 1000 beiðnir frá herforingjastjórninni um afhendingu gagna eða eftirlit. Þau sýna jafnframt að starfsmenn Telenor í Mjanmar hafi verið meðvitaðir um afleiðingarnar sem afhending gagnanna gæti haft. Meðal annars gætu gögn um Aung San Suu Kyi verið nýtt í máli herforingjastjórnarinnar gegn henni. Hún hafði í lok árs 2022 verið dæmd í 33 ára fangelsi í nokkrum dómsúrskurðum en síðan þá hefur refsingin verið lækkuð í nokkrum skrefum, síðast niður í 18 ár í apríl á þessu ári. Hún er áttræð að aldri.
„Mér er mjög brugðið en ég er ekki hissa. Stór fyrirtæki eiga alltaf í viðskiptum við slæmt fólk,“ sagði Kim Aris, sonur Suu Kyi, í sömu umfjöllun. Hann sagði einnig að Telenor hefði geta flúið land strax og eytt þessum gögnum. Þetta var sérstaklega sárt fyrir hann þar sem friðarverðlaun Nóbels, sem móðir hans fékk, voru afhent í Noregi 1991 og Kim tók við þeim, þá 14 ára, fyrir hönd móður sinnar sem sat þá í stofufangelsi.
Telenor neitaði aldrei að afhenda gögn
En Aung San Kuu Kyi var ekki sú eina. Minnst 1.253 viðskiptavinir Telenor í Mjanmar lentu ýmist í því að gögn um þá voru afhent herforingjastjórninni eða lokað var fyrir símana þeirra að undangenginni kröfu herforingjastjórnarinnar. Hátt í 500 þeirra áttu það á hættu að vera handteknir á grundvelli upplýsinga sem voru veittar á þennan hátt. Telenor hafnaði ekki einni einustu beiðni frá herforingjastjórninni um persónuupplýsingar eða lokun.
Sigve Brekke forstjóri Telenor ítrekar að fyrirtækið hafi átt engra annarra kosta völ. „Við vorum undir herforingjastjórn og það að neita henni hefði sett starfsmenn okkar í bráða lífshættu gagnvart yfirvöldum,“ sagði hann. Herforingjastjórnin hafi auk þess sett á ferðabann þannig að starfsmenn hafi hvorki komist lönd né strönd. Þeir hafi í raun verið í gíslingu.
Samstarf kom málinu til lögreglu
Þegar þessi umfjöllun NRK birtist fyrir rétt rúmu ári var málið þegar komið á borð Kripos, norsku öryggislögreglunnar. Það gerðist að frumkvæði tveggja samtaka – mannréttindasamtakanna Justice for Myanmar og Noregsdeildar samtakanna International Commission for Jurists, alþjóðasamtaka lögfræðinga og dómara sem vilja stuðla að því að mannréttindi séu virt. Ove Kenneth Nodland, framkvæmdastjóri Noregsdeildar International Commission for Jurists, útskýrir að samtökin Justice for Myanmar hafi haft samband með skjöl sem sýndu sölu Telenor á eftirlitsbúnaði til herforingjastjórnarinnar í Mjanmar. Herforingjastjórnin gæti svo notað hann til að hafa eftirlit með fólki og jafnvel handtekið fólk sem hún teldi óvinveitt sér. „Við teljum að fyrirtæki í norskri eigu ætti ekki að leyfast þetta án þess að það sé látið reyna á það,“ segir Nodland. Við framangreinda umfjöllun NRK bættist svo við afhending á persónulegum gögnum um ákveðna einstaklinga.
Samtökin sendu kæru til öryggislögreglunnar í lok árs 2024 vegna sölunnar á eftirlitsbúnaðinum en kærunni var vísað frá í september 2025 án rannsóknar. Þeirri ákvörðun var áfrýjað til ríkissaksóknara Noregs með ítarlegri kæru og þá einnig til Kripos vegna mannréttindabrota við gagnaafhendinguna. Það varð til þess að málið var tekið til rannsóknar. Hluti af henni er húsleitin sem var gerð í höfuðstöðvum Telenor 15. september.
Ove Kenneth Nodland segir velgengni Telenor í Mjanmar hafa að miklu leyti skýrst af miklu trausti á fyrirtækinu.
„Telenor var Noregur í huga íbúa í Mjanmar – trúverðugur bandamaður sem var hægt að treysta á. Stjórnendur nýttu sér þetta í markaðssetningu þannig að þegar við segjum að mikið sé að hjá Telenor hafa þau áhrif því miður smitast yfir á Noreg almennt,“ segir Nodland.
Að auki hafi norsk yfirvöld lagt sitt af mörkum til að koma fyrirtækinu inn í landið. Þó að bjartsýni hafi verið mikil þar lét herinn aldrei algjörlega af völdum og því vissu stjórnvöld að kjörnir fulltrúar voru ekki með öll völd í landinu.
Nodland bendir jafnframt á að væntingarnar til jafn stórs fyrirtækis og Telenor, sem hafði verið með starfsemi víða í Asíu, væru að áreiðanleikakönnun hefði verið gerð á landinu og að fyrirtækið færi ekki inn í land án þess að vera með skýra útgönguleið. Þeir hefðu því getað undirbúið sig mun betur áður en þeir hófu starfsemina. „Það er því hugsanlegt að af þessari ástæðu hafi margir sem voru mögulega í mestri hættu ef herforingjastjórnin fengi upplýsingar um þá valið Telenor því minnstu líkurnar væru á að upplýsingar lækju þaðan. En þetta vitum við ekki með vissu.“
Hann er að auki á þeirri skoðun að Telenor hefði getað gert ýmislegt annað en að afhenda herforingjastjórninni gögnin. Þó að Telenor hafi ítrekað sagst hafa átt engra annarra kosta völ hafi utanríkisráðuneytið varað Telenor við því áður en herinn rændi völdum að stjórnvöld í Mjanmar væru undir miklum þrýstingi. „OECD sagði í sinni skýrslu skömmu fyrir valdaránið að Telenor hefði ekki neina áætlun um útgönguleið ef aðstæður breyttust. Það finnst mér bæði undravert og mjög slæmt af fyrirtæki af þessari stærð,“ segir Nodland. Og hann bætir við:
„Ef fyrirtæki hefur starfsemi og fer í innviðafjárfestingar í landi með stormasama sögu er aldrei hægt að útiloka að vera settur í erfiða stöðu. Þá gerir maður áætlun sem tekur tillit til þess. Þá þarf ekki aðeins að hugsa um hverjar líkurnar eru á að það gerist heldur hversu alvarleg staða kemur upp ef það gerist. Svo þarf líka að hafa í huga að fyrir valdaránið stóð yfir þjóðarmorð gegn Róhingjamúslimum sem sýnir enn frekar hversu erfitt ástandið er í landinu. Herinn hafði aldrei látið völdin frá sér að fullu. Kannski var ekki hægt að sjá fyrir að þetta myndi gerast einmitt í febrúar 2021 en það hefði verið eðlilegt að búast við því að það gerðist einhvern tímann.“
Það eru fleiri svör sem samtökin ICJ telja ósannfærandi. Spurningum um hvers vegna eftirlitsbúnaður var ekki eyðilagður eða gögnum eytt áður en herforingjastjórnin komst í þau var svarað með því að gögnin hefðu verið geymd á svæði þar sem ríkti neyðarástand. Það hefði þurft að eyða þeim handvirkt og það hefði sett starfsmenn í hættu. Nodland segir það skiljanlega afstöðu miðað við þessar aðstæður. Hættumat með áætlun um hvað skyldi gera við gögnin ef þessi staða kæmi upp hefði aftur á móti gert það að verkum að hægt væri að eyða eða læsa gögnum án þess að starfsfólkið yrði sett í hættu.
„Ég hef samúð með því að Telenor hafi viljað vernda starfsmenn sína, en hvernig þetta var gert gerði það að verkum að fyrirtækið neyddist til að velja á milli velferðar starfsmannanna og viðskiptavinanna. Okkar skoðun er að ef þetta hefði verið undirbúið betur í byrjun hefði verið hægt að forða þessari ómögulegu stöðu sem fyrirtækið taldi sig vera í,“ segir Nodland.
Viðskiptavinir höfða skaðabótamál
Þess má geta að auk rannsóknar Kripos og öryggislögreglunnar hafa viðskiptavinir Telenor í Mjanmar höfðað skaðabótamál á hendur fyrirtækinu, sem verður tekið fyrir í norskum dómstólum á næstunni. Krafan er 9000 evrur, rúmlega 1,2 milljónir, í skaðabætur fyrir hvern viðskiptavin sem lenti í því að gögn um hann voru afhent herforingjastjórninni. Ef fallist verður á það jafngilda skaðabæturnar ríflega einum og hálfum milljarði íslenskra króna – sem er aðeins lítið brot af hagnaði Telenor frá 2024 svo dæmi sé tekið.
Nodland segir mikilvægt að ef í ljós kemur að starfsmenn Telenor hafi tekið ákvarðanir sem fari á svig við lög hafi það afleiðingar.
„Það er líka hugsanlegt að einhverjir innan norska ríkisins hafi tekið þátt í samtölum um stöðuna í Mjanmar. Ef þeir hafi þekkt vandamálin og stutt við ákvarðanir sem síðar reynast vera ólöglegar þá gætu viðkomandi borið persónulega ábyrgð þar. Ég tel að það sé mikilvægt að norska ríkið sýni að það taki eigin reglum alvarlega og að þeir sem hafi brotið þær axli ábyrgð. Það séu með öðrum orðum allir jafnir fyrir lögum.“
Nodland segir að lokum að það sé ekkert nýtt að alræðisstjórnir noti þessa leið til að afla upplýsinga um þá sem þær telja óvini sína, til dæmis með því að koma á samstarfi við einkafyrirtæki. Telenor hafi vitað af þessari hættu. „Planið sem Telenor hafði þegar allt breyttist var einfaldlega ekki nógu gott og það mátti sjá fyrir. Bæði Telenor og norska ríkið sögðust alltaf vilja standa vel að hlutunum allt frá upphafi. Það var augljóslega svikið.“