Salam Ahmadyan og Rahman Salehi, íranskir karlmenn á fertugsaldri, voru handteknir í Liverpool og Salford og ákærðir fyrir ráðabrugg um hryðjuverk gagnvart samfélagi gyðinga í Manchester.
Þeir eru grunaðir um að hafa undirbúið verknaðinn í samráði við þriðja aðila erlendis að því er segir í sameiginlegri yfirlýsingu lögregluembætta Manchester, Lundúna og hryðjuverkadeildar lögreglu.
Sá kann að hafa aðsetur í Íran að sögn lögreglu. Mennirnir voru handteknir 20. september og hafa síðan verið í varðhaldi. Þeim var birt ákæra í gær, föstudag. Þeir verða leiddir fyrir dómara í dag sem úrskurðar um lengd gæsluvarðhalds yfir þeim.
Mjög alvarlegar ásakanir
Náin samvinna lögregluembættanna varð til þess að upp um mennina komst að sögn Vicki Evans, yfirmanns hjá hryðjuverkadeildinni, sem segir ásakanirnar á hendur tvímenningunum mjög alvarlegar.
Evans ítrekar að almenningur sé ekki í hættu en hvetur fólk til árvekni og að tilkynna lögreglu kvikni grunsemdir um ólöglega háttsemi.
Eðlilega sé samfélagi gyðinga brugðið enda standi nú yfir helgustu dagar gyðingdóms, ár sé liðið frá hryðjuverkaárásinni við bænahúsið í Heaton Park ásamt því að atvikum tengdum gyðingaandúð hafi fjölgað á Bretlandseyjum. Lögregla verði mjög sýnileg á næstunni, að sögn yfirvalda.