Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að þó að atvinnuleysi sé ekki mikið innan VR hafi laun stórs hluta félagsfólks lækkað síðustu tvö ár.
Alls var 181 sagt upp í sex hópuppsögnum í september, flestum á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni.
Halla segir að margt jákvætt sé í þeim aðgerðum sem stjórnvöld boði til þess að tryggja að kjarasamningar geti haldið. Það sé þó ekki nóg.
Þá er hún gagnrýnin á viðbrögð Samtaka atvinnulífsins.
„Þau hafa skilað algjörlega auðu gagnvart okkar áhyggjum og kröfum og svona óskum um viðurkenningu á þeirri staðreynd að launafólk hefur verið svikið á gildistíma þessara kjarasamninga.“
Hún segir VR hafa lagt fram tillögur að lausnum sem SA hafi ekki brugðist nægilega við.
„Ein af tillögunum sem við höfum nú lagt á borðið er að við látum þessa kjarasamninga halda en fáum inn í þá endurskoðunarákvæði sem að geti virkjast ef að þetta launalækkunarferli okkar félagsfólks heldur áfram. Þannig að boltinn er þar núna og þau geta ekki skilað auðu í þessari atrennu,“ sagði Halla í sjónvarpsfréttum í kvöld.