Það kom aðdáendum í opna skjöldu þegar greint var frá því árið 2024 að Lana Del Rey, sem réttu nafni heitir Elizabeth Woolridge, hefði gengið í það heilaga með krókódílaleiðsögumanninum Jeremy Dufrene.
Í september hafa orðrómar verið í dreifingu á samfélagsmiðlum um að Dufrene hefði haldið fram hjá Del Rey, en orðrómurinn virðist eiga rætur að rekja til færslu frá slúðurreikningnum Celebritea Blinds sem birt var í byrjun síðasta mánaðar.
Nú virðist Dufrene sjálfur hafa séð myndskeiðið og hefur hann brugðist við í ummælakerfinu.
„Hver er þessi [tík] sem er að dreifa orðrómum? Þið trúið þessu ekki. Ég er með Lönu 27-7 eða hún veit nákvæmlega hvar [ég er] og hvað ég er að gera. Hún er búin að sjá þetta og sagði bara [„þvílíkt kjaftæði[“],“ skrifar Dufrene.
„Fröken, farðu bara að fljúga flugdreka ef þú veist hvernig.“
Lana del Rey hefur ekki sjálf tjáð sig um málð á opinberum vettvangi.