Alls söfnuðust 111.340.000 krónur til styrktar Reykjalundi í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í kvöld.
Brýn þörf er á uppbyggingu og markmiðið er að senda Reykjalund í eins konar endurhæfingu. Fjöldi listafólks, skjólstæðinga Reykjalundar og annars velgjörðarfólks kom fram í þættinum.
Markmiðinu náð
Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Reykjalundar og Kolbrún Þorsteinsdóttir stjórnarmaður í hollvinasamtökum Reykjalundar voru himinlifandi með söfnunina en markmiðið var að safna 100 milljónum.
„Þetta er nú þegar að fara fram úr okkar björtustu vonum, maður fær hlýtt í hjartað,“ sagði Svana.
Þakklæti var þeim ofarlega í huga.
„Mig langar að þakka þjóðinni allri fyrir þetta,“ sagði Svana. „Og öllum sem hafa komið fram og tekið þátt í þessu vegna þess að þetta er búið að vera stórkostlegt.“
Kolbrún átti lokaorðin í þættinum:
„Við viljum að Reykjalundur verði áfram flottasta og besta endurhæfingarstöðin á Íslandi. Við viljum bara að Reykjalundur lifi áfram.“
Meðal þeirra sem sendu Reykjalundi kveðju og þjóðinni hvatningu var Halla Tómasdóttir forseti Íslands.
Þó að málefnið sé alvarlegt var líka slegið á létta strengi. Hér má til dæmis sjá brot úr viðtali Gunnu Dísar við Svein Guðmundsson, stjórnarformann SÍBS. Gunna Dís þurfti þó að hlýða öllum skipunum Fannars Sveinssonar, hraðfréttamanns, á meðan hún tók viðtalið.