Lögreglan greinir frá þessu í tilkynningu en þar segir að engin mynd sé tiltæk af Halldóri.
Talið er líklegt að Halldór, sem er um 183 cm á hæð, grannvaxinn og dökkhærður, haldi til á höfuðborgarsvæðinu.
„Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Halldórs eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000 eða í neyðarnúmerið 112,“ skrifar lögreglan.