Christa Pike liggur meðvitundarlaus á spítala eftir að tvær tilraunir til að taka hana af lífi fóru út um þúfur.
Á miðvikudag átti aftaka Pike að fara fram og fékk hún tvær banvænar sprautur af pentóbarbítóli en Pike lést ekki og var aftöku hennar því frestað.
Samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar var hún flutt á sjúkrahús með bólgna og brunna handleggi. Þar gekkst hún undir barkaþræðingu og liggur nú í öndunarvél.
Ekki stendur til að fella niður dauðarefsingu Pike en aftökum hefur þó verið frestað í Tennessee út árið þar sem þetta er önnur misheppnaða aftakan í ríkinu á þessu ári.
Bill Lee ríkisstjóri Tennessee þvertók fyrir að náða Pike, samkvæmt fréttum NBC-fréttastöðvarinnar, en lögmenn hennar krefjast þess að ekki verði reynt að lífláta Pike að nýju.
Ein sú yngsta sem dæmd hefur verið til dauða
Pike hefur verið á dauðadeild í Tennessee í um þrjátíu ár en hún var dæmd fyrir manndráp sem hún framdi þegar hún var átján ára gömul og varð þar með ein yngsta konan sem dæmd hefur verið til dauða í bandarískri réttarsögu.
Pike hlaut dóminn fyrir að hafa, ásamt kærasta sínum, banað hinni 19 ára gömlu Colleen Slemmer í Knoxville í Tennessee árið 1995. Kærasti Pike var 17 ára og fékk því vægari dóm – lífstíðardóm með möguleika á skilorði.
May Martinez móðir Slemmers býr í Flórída en safnaði sérstaklega fyrir ferðinni til Tennessee til að vera viðstödd aftökuna. Hún er ríkinu reið fyrir mistökin og segir yfirvöld þar skulda sér afsökunarbeiðni.
Hefði aftakan heppnast væri Pike fyrsta konan til að vera tekin af lífi í Tennessee í meira en tvo áratugi. Í Bandaríkjunum öllum hafa aðeins 18 aftökur farið fram á konum síðan 1976.