Umferð frá tónlistarhátíðinni á Þingvöllum hefur gengið greiðlega

Umferð frá tónlistarhátíðinni á Þingvöllum hefur gengið greiðlega

Umferð frá tónlistarhátíðinni á Þingvöllum hefur gengið greiðlega

Fréttavakt um tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum er lokið. Við þökkum samfylgdina í dag og hér er stutt samantekt eftir daginn.

Gestir mættu snemma á tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum. Líklega hefur góða veðrið spilað þar inn í og þegar leið á daginn fór umferð að þyngjast til Þingvalla. Farþegar komu bæði í rútum og á einkabílum til Þingvalla. Dagskráin hófst kl. 14.00 og stóð til miðnættis.

Mikill viðbúnaður var á svæðinu hjá lögreglu, viðbragðsaðilum og tónleikahöldurum en þrátt fyrir mikinn mannfjölda gekk allt stóráfallalaust fyrir sig. Umferð frá Þingvöllum hefur gengið greiðlega fyrir sig síðan hátíðinni lauk.

Jökull Júlíusson, söngvari Kaleo, klæddist handprjónuðu axlarskjóli á tónleikunum og að þeim loknum gaf hann Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, axlarskjólið sitt. Hér má sjá myndskeið af því þegar hann gefur Höllu axlarskjólið.

Umferð hefur gengið greiðlega frá Þingvöllum eftir að tónlistarhátíðinni Bergmáli lauk á miðnætti. Að sögn Jóns Gunnars Þórhallssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi, er lítill hluti gesta enn á svæðinu en er að týnast þaðan smám saman.

Mikill fjöldi bíla var lagður á bílastæði við Brúsastaði og myndaðist teppa þar fyrr í nótt þegar gestir voru að fara heim á leið. Búið er að leysa það að mestu.

Lögregla og viðbragðsaðilar verða áfram að störfum eitthvað fram eftir nóttu eða þar til síðustu tónleikagestir eru farnir af svæðinu.

Lögreglan á Suðurlandi birti færslu á Facebook þar sem vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitssemi. Mikill fjöldi tónleikagesta er nú á leið til höfuðborgarsvæðisins og því mikilvægt að fylgja leiðbeiningum gæslufólks og lögreglu á svæðinu.

Tilkynning lögreglunnar er svohljóðandi:

Nú þegar líður að lokum tónleikahalda á Þingvöllum reynir á þolinmæði tónlistargesta meðan fjöldinn yfirgefur svæðið. Mikilvægt er að allir sem einn sýni þolinmæði og tillitsemi og fylgi leiðbeiningum sem gæslufólk og lögregla gefa vegfarendum.

Þá er það ekki síður mikilvægt að vera þolinmóður í röðum sem munu myndast og að grípa ekki til ógætilegs framúraksturs á leiðinni heim.

Lögreglan mun halda uppi eftirliti með ölvunar- og fíkniefnaakstri við brottför tónleikagesta.

Lögreglan á Suðurlandi óskar öllum góðrar heimferðar.

Samkvæmt sjúkraflutningamönnum sem eru á Þingvöllum hafa einungis lítilsháttar atvik komið upp og engin alvarleg slys hafa orðið á hvorki tónleikagestum né öðrum á svæðinu fram til þessa. Það þykir gott miðað við þann mikla fjölda sem lagði leið sína á Þingvelli í dag.

Upplýsingar sem birtar voru um að Mosfellsheiði verði lokuð eftir að tónleikum Kaleo ljúki voru ekki réttar.

Lögreglan áréttar að Mosfellsheiði verður opin í kvöld.

Kaleo heldur nú sína seinni tónleika í dag. Ragnar Visage, ljósmyndari, tók þessar myndir af tónleikunum.

Tónleikum Kaleo á að ljúka klukkan 22:30 en dagskránni lýkur þó ekki fyrr en á miðnætti. Á eftir Kaleo spilar KK og Júníus Meyvant bindur svo endahnút á dagskránna.

Hér koma nokkrar myndir frá Bergmáli.

Ragnar Visage ljósmyndari RÚV náði þessu myndskeiði baksviðs á Bergmáli fyrir skömmu. Meðlimir í Kaleo kíktu í matartjaldið til starfsmanna sem fór þannig að þeir tóku lagið með Karlakórnum Fóstbræðrum sem voru að snæða kvöldmat.

Sjón er sögu ríkari.

Tónleikar Emilíönu Torrini hófust klukkan hálf átta. Sólin hefur svoleiðis leikið við söngkonuna sem virðist njóta sín í botn.

Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður steig á svið í dag en hann heldur einnig utan um skipulag Bergmáls. Fréttastofa náði tali af honum klukkan 18.

Hann sagði hátíðina hafa gengið fullkomlega fram að þeim tíma.

„Við vonumst til að það haldi áfram að vera fullkomleiki hér í fyrirrúmi, sól og blíða og yndisleg stemning.“

Það var talsverð umræða um regnhlífar og hvort þörf yrði á dulúðlegum veðurbreyti Jakobs Frímanns fyrir hátíðina. Veðrið hefur leikið við tónleikagesti á Þingvöllum í dag.

„Það hefur gengið eins og best hefði mátt óska sér og fyrir það erum við afar þakklát. Bros á hverju andliti,“ segir Jakob Frímann. „Við erum auðvitað bara hálfnuð. Þetta byrjaði svona um hádegisbilið og það er annað eins eftir. Þessu lýkur á miðnætti og við vonum að við fáum áfram gott veður og gott þel.“

Hvernig var að stíga á svið sem Stuðmaður í þjóðgarðinum í dag?

„Það var skemmtilegt. Það var í fyrsta skipti sem Stuðmenn spiluðu í þjóðgarði Íslands og það tókst óskaplega vel. Við vorum með okkar aldavini, karlakórinn Fóstbræður með stjórnandanum Árna Harðarsyni, og svo vorum við með ýmsa óvænta gesti sem komu og glöddu okkur og áhorfendur líka. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt.“

Hljómsveitin Hjálmar steig á svið klukkan 18:30 en tónleikunum er nýlokið samkvæmt dagskrá Bergmáls. Meðlimir Hjálma eru þeir Þorsteinn Einarsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Sigurður Halldór Guðmundsson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson og Helgi Svavar Helgason.

Hér koma myndir frá tónleikunum.

GDRN var leynigestur og steig á svið með Hjálmum.

Ragnar Visage náði þessari skemmtilegu mynd af forsetahjónunum, Höllu Tómasdóttur og Birni Skúlasyni, og Soffíu Björg. Soffía tók lagið á þriðja tímanum á tónleikunum á Valhallarsviði.

Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir stemninguna á Þingvöllum í dag hafa verið góða og allt gengið smurðulaust.

„Fólk hefur verið mjög jákvætt og mér sýnist hérna yfir hópnum þá er góð stemning yfir öllu. Þannig ég hef ekki yfir neinu að kvarta eins og er en við erum nú að leggja af stað inn í kvöldið og vonum að þetta haldist svona áfram.“

Hér koma myndir frá tónleikum Helga Björns á stóra sviðinu. Samkvæmt dagskrá Bergmáls eru tónleikarnir enn í gangi.

Tónleikum Mugisons á Dynbergi lauk rétt í þessu. Hér eru myndir frá þeim.

Situr þú í bílaröð á leið á Þingvelli?

Ef svo er höfum við áhuga á að heyra frá þér og fá myndir úr bílaröðinni. Endilega hafið samband í frettir@ruv.is.

Athugið að gott er að fá nafn ljósmyndara með myndum og að ef þið sendið okkur ljósmyndir tökum við því sem leyfi til að birta þær á miðlum okkar.

Söngkonan GDRN, Guðrún Ýr Eyjólfsdóttir, steig á svið klukkan 16.

Magnús Jóhann lék undir með GDRN. Þau hafa unnið töluvert saman í gegnum tíðina og gefið út hljómplöturnar Tíu íslensk sönglög og Nokkur jólalög.

Ragnar Visage ljósmyndari RÚV fangaði nýverið myndir af hátíðinni úr lofti með dróna. Hér koma nokkrar þeirra!

Hér koma nokkrar myndir af viðbragðsaðilum á Þingvöllum.

Lögreglan á Suðurlandi er með mikinn viðbúnað í kringum tónleikana en ætla má að um 100 lögreglumenn komi að henni.

Það vakti athygli þegar greint var frá því fyrr í vikunni að bannað væri að taka regnhlífar og tjaldstóla á Bergmál. Veður á Þingvöllum í dag er með ágætum og því verður að teljast hæpið að tónleikagestir sakni regnhlífarinnar.

En hvers vegna er bannað að koma með slíka muni á tónleikana? Fréttastofa náði tali af lögreglu sem sagði það vera af öryggisástæðum.

Það var vitanlega mikið stuð á Þingvöllum þegar Stuðmenn stigu á svið með alþjóðlegum kór fyrir skömmu.

Fréttastofa náði tali af 17 ára piltunum Bjarna Ásberg Þorkelssyni og Lúkasi Viktorssyni á hátíðinni. Þeir eru hluti af stærri hópi sem allir eru klæddir í þema.

„Þegar við fórum að sækja miðana okkar í 66° Norður hittum við á hann Jökul, vin okkar í Kaleo, og spurðum hann um þemað. Það var auðvitað lopapeysur,“ segir Bjarni Ásberg.

„Maður hlýðir Jökli.“

Lögreglan fylgist náið með gangi mála, bæði á hátíðarsvæðinu en umferðareftirlit er einnig umfangsmikið.

Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar, var við Hakið þegar rætt var við hann í síðdegisfréttum. Hann segir að umferð gangi hægt en allir komist leiðar sinnar að lokum. Hann segir að búist hafi verið við því að gestir mættu seinna á svæðið. Strax klukkan 13 hafi umferð farið að þyngjast.

Árni biður gesti að hlýða fyrirmælum lögreglu og þá sem eiga pláss í bílastæði að hafa bílastæðamiða sjáanlega í rúðum.

Hér koma fleiri myndir frá Þingvöllum. Á þeim má meðal annars sjá tónleikagesti rölta yfir á tónleikasvæðið og hjónin Sögu Garðarsdóttur og Snorra Helgason á sviði.

Enn er laust á bílastæðinu við Leirur fyrir þá sem eru að koma að austan, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi. Einnig er laust á bílastæðinu við Brúsastaði. Önnur bílastæði eru full.

Lokanir á Þingvallavegi tóku gildi klukkan þrjú, þær eru við Grafningsafleggjara vestan við Þingvallavatn, við Uxarhryggjaveg við norðurenda vatnsins og við Miðfell austan við Þingvallavatn. Vegurinn verður lokaður öllum nema þeim sem eiga miða á tónleikana. Takmarkanirnar munu hafa áhrif á umferð, sér í lagi um Mosfellsheiði.

Klukkan 14 í dag var röð í öryggisleit á Þingvöllum ekkert sérstaklega löng og gekk hratt. Eva Björk Benediktsdóttir fréttamaður er á svæðinu. Hún náði tali af öryggisverði sem segir öryggisgæslu hafa gengið mjög vel. Viðbúið sé að röðin eigi eftir að lengjast með deginum og líklegt að hún nái hámarki um 16.

Sumarsólstöður eru lengsti dagur ársins í þeim skilningi að þá er sólin lengst á lofti. Orðið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, hún hættir að hækka eða lækka á lofti.

Sólarupprás á Þingvöllum í dag var klukkan 02:48 og sólarlag verður ekki fyrr en 5 mínútum eftir miðnætti, aðeins örfáum mínútum eftir að tónleikahaldi lýkur.

Formlegar sumarsólstöður eru hins vegar á morgun, 21. júní.

Jól eru kristin hátíð. Hátíðahöld hafa þó verið í norðurhluta Evrópu á vetrarsólstöðum síðan fyrir tíma kristnitöku. Vetrarsólstöður eru um svipað leyti og jóladagur, 21. desember á ári hverju.

Árstíðir á norðurhveli og suðurhveli eru gagnstæðar. Þetta þýðir að á suðurhveli jarðar eru nú vetrarsólstöður.

Gleðilega sólstöðuhátíð!

Hér koma myndir af fyrri tónleikum Kaleo í dag. Þeir hétu Kaleo acoustic og voru með öðruvísi sniði en seinni tónleikar hljómsveitarinnar sem verða klukkan 21-22:30.

Hljómsveitin samanstendur af Jökli Júlíussyni, Davíð Antonssyni, Daníel Kristjánssyni, Þorleifi Gauki Davíðssyni og Rubin Pollock.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarpaði hátíðargesti á Þingvöllum.

Egill Tómasson svæðisstjóri var í óðaönn að stýra undirbúningi þegar fréttamaður náði tali af honum í hádeginu. Um þúsund manns eru við störf á hátíðinni, auk nærri 100 lögreglumanna.

„Það er kominn her af fólki að fara í allar stöður, öryggisgæsla og fleira og allir starfsmenn í tæknideildum, matarvagnar, barstaff og annað. Það er mikið „action“ núna, verið að leggja lokahönd á síðustu „díteilin“, þetta lítur mjög vel út,“ segir Egill.

„Það er náttúrulega sól og blíða þannig að fólk þarf ekkert að koma með regnhlífarnar sínar og fólk getur setið í grasinu. Það er dásamleg stemning hérna.“

Tónleikagestir eru farnir að streyma á Þingvelli. Lögreglan á Suðurlandi segir að umferðin sé þétt og gangi rólega en örugglega. Hún hvetur gesti til að sýna þolinmæði og tillitssemi í umferðinni.

Ragnar Visage ljósmyndari RÚV er á Þingvöllum. Hér koma nokkrar myndir frá tónleikasvæðinu.

Kaleo stigu á svið á stóra sviðinu, Dynbergi, rétt í þessu.

Tónleikarnir á Dynbergi eru í beinni útsendingu á Bylgjunni og á vef Vísis. Þá er hægt að horfa á tónleikana í Sjónvarpi Símans í opinni dagskrá.

Dagskráin á stóra sviðinu er svona:

  • 14:00- 14:20 - Opnunarathõfn 
  • 14:30 - 15:00 - Kaleo acoustic 
  • 15:10 - 15:40 - Stuðmenn 
  • 16:00 - 16:30 - GDRN 
  • 16:45 - 17:15 - Mugison 
  • 17:30 - 18:15 - Helgi Björns 
  • 18:30 - 19:15 - Hjálmar 
  • 19:30 - 20:30 - Emiliana Torrini 
  • 21:00 - 22:30 - Kaleo 
  • 22:40 - 23:15 - KK 
  • 23:30 - 24:00 - Júníus Meyvant

Góðan daginn.

Tónlistarhátíðin Bergmál er haldin á Þingvöllum í dag. Hljómsveitin Kaleo er meðal þeirra sem standa að baki tónleikunum. Hún stígur á svið í fyrra skiptið á hátíðinni klukkan 14:30. Að auki við hana koma fram hljómsveitir og tónlistarfólk á borð við KK, GDRN, Júníus Meyvant, Mugison, Helgi Björns og Emiliana Torrini – svo einhver séu nefnd.

Töluverður viðbúnaður er vegna hátíðarinnar en unnið hefur verið að skipulagi hennar í dágóðan tíma. Von er á um 20 þúsund tónleikagestum á Þingvelli í dag. Bergmál er sólstöðuhátíð enda dagurinn lengstur á Íslandi yfir þessa helgi. Sumarsólstöður eru á morgun, 21. júní.

Ég heiti Guðmundur Atli Hlynsson og flyt fregnir frá Þingvöllum í dag.

#frá #hefur #tónlistarhátíðinni #umferð #þingvöllum


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-20-umferd-fra-tonlistarhatidinni-a-thingvollum-hefur-gengid-greidlega-478851

📰 Aðrar fréttir

Lög­reglu­em­bættum fækkað veru­lega - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Lög­reglu­em­bættum fækkað veru­lega - Vísir
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra ...
Maður með hníf í Hagkaup á Eiðistorgi – Lögregla beitti rafbyssu
📅 24.09.2026 👁️ 1
Maður með hníf í Hagkaup á Eiðistorgi – Lögregla beitti rafbyssu
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu var lögr...
Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk - Vísir
Fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að haft hafi verið samband við eigendur bílanna og tréð í kjölfarið fjarlægt. Í öðrum veðurtengd...
Guðmundur hristi höfuðið yfir orðum Ingu
📅 24.09.2026 👁️ 1
Guðmundur hristi höfuðið yfir orðum Ingu
Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherraembætti og umfjöllun RÚV þess efnis voru í brennidepli í upphafi óundirbúinna fyrirspurna á Alþingi í d...
'It has broken us as a family,' mother of poison seller victim tells hearing
📅 24.09.2026 👁️ 1
'It has broken us as a family,' mother of poison seller victim tells hearing
Tanya Whitaker broke down before she spoke of how her son Samuel's death had devastated her family.
Mikill vatnsstrókur í Mið­firði - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Mikill vatnsstrókur í Mið­firði - Vísir
Veðurfyrirbæri þetta myndast víða í fjörðum landsins í miklu hvassviðri eins og var í dag. Að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings er um vatnsstr...
Segir kjör Wolt-sendla skána á næstu fjórum til sex vikum
📅 24.09.2026 👁️ 1
Segir kjör Wolt-sendla skána á næstu fjórum til sex vikum
Gheorghe Mihai Cacaliceanu, talsmaður Wolt-sendla, segir fund þeirra með forsvarsmönnum fyrirtækisins hafa gengið vel í dag. Fundurinn hófst klukkan 1...
Tré féll á veg í óveðri í miðborginni
📅 24.09.2026 👁️ 1
Tré féll á veg í óveðri í miðborginni
Tré féll í miðborg Reykjavíkur í dag og olli tjóni á tveimur bílum. Þetta kemur fram í upplýsingapósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að...
Sex skriðuviðvaranir í gildi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sex skriðuviðvaranir í gildi - Vísir
Að því er kemur fram á upplýsingasíðu Veðurstofunnar gilda viðvaranirnar ýmist fram á föstudag eða laugardag eftir svæðum. Talsvert hefur rignt víða á...
Segir viðbrögð Ingu ekki koma á óvart og krefst áfram svara - „Þetta hefur ekkert með „upplifun“ að gera“
📅 24.09.2026 👁️ 2
Segir viðbrögð Ingu ekki koma á óvart og krefst áfram svara - „Þetta hefur ekkert með „upplifun“ að gera“
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að framganga Ingu Sæland í þingsal hafi ekki komið henni á óvart, enda komi henni orðið fát...
Isavia fór ekki að lögum á þremur bílastæðum
📅 24.09.2026 👁️ 2
Isavia fór ekki að lögum á þremur bílastæðum
Persónuvernd hefur sent frá sér niðurstöður frumkvæðisathugunar á vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun á bílastæðum fimm innanlands...
„Svona á­kvarðanir eru ekki teknar í tóma­rúmi“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
„Svona á­kvarðanir eru ekki teknar í tóma­rúmi“ - Vísir
Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu innt eftir viðbrögðum við því að Guðmundur Ingi Kristinsson, óháður þingm...
Yfir helmingur villtra laxa veiddist á Vesturlandi í sumar
📅 24.09.2026 👁️ 2
Yfir helmingur villtra laxa veiddist á Vesturlandi í sumar
Laxveiði gekk talsvert betur í ár en í fyrra, sér í lagi á Vesturlandi. Í stærstu ánni veiddust um þúsund fleiri laxar en síðasta sumar.Laxveiðin gleð...
Orðin lýsi skeytingar­leysi ríkis­stjórnarinnar - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Orðin lýsi skeytingar­leysi ríkis­stjórnarinnar - Vísir
Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrr í dag bar Guðrún undir Ingu nýjustu fregnir af máli Guðmundar Inga Kristinssonar. Guðmundur lét af embætti s...
Rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti tengist mögulega annarri rannsókn
📅 24.09.2026 👁️ 2
Rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti tengist mögulega annarri rannsókn
Lögreglan handtók 17 í tengslum við rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti. Sex sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins þar til á morg...
Bönnuðu miðlunum hleypt aftur inn í Hvíta húsið
📅 24.09.2026 👁️ 2
Bönnuðu miðlunum hleypt aftur inn í Hvíta húsið
Fjölmiðlunum þremur sem Bandaríkjaforseti úthýsti hefur verið hleypt inn í Hvíta húsið á ný. Þeim var vísað frá í morgun þvert á bráðabirgðaúrskurð dó...
Fall Play hafði neikvæð áhrif á tekjur Isavia
📅 24.09.2026 👁️ 2
Fall Play hafði neikvæð áhrif á tekjur Isavia
Tekjur Isavia lækkuðu á fyrri helmingi ársins og meðal skýringa er fall flugfélagsins Play í fyrra og að rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli ...
Litlar breytingar þrátt fyrir laga­breytinguna - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Litlar breytingar þrátt fyrir laga­breytinguna - Vísir
Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis. Ný lög um þungunarrof tóku gildi árið 2019 og var með þeim konum heimilt að óska eftir þunguna...
Greek PM Mitsotakis urges Burnham to return Elgin Marbles
📅 24.09.2026 👁️ 2
Greek PM Mitsotakis urges Burnham to return Elgin Marbles
Andy Burnham said in 2023 the sculptures should be returned to Greece with "no strings attached".
Þurfa samstillt átak ríkis og sveitarfélaga til að takmarka gjaldskrárhækkanir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Þurfa samstillt átak ríkis og sveitarfélaga til að takmarka gjaldskrárhækkanir
Sveitarfélög vilja takmarka gjaldskrárhækkanir um áramótin til að vinna gegn verðbólgu. Miklar umræður sköpuðust í gærkvöld á landsþingi Sambands ísle...
Sleppt inn í Rússland eftir margra tíma yfirheyrslu
📅 24.09.2026 👁️ 2
Sleppt inn í Rússland eftir margra tíma yfirheyrslu
Það er ekki hlaupið að því fyrir vestræna fréttamenn að komast til Rússlands eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Bæði er það vegna viðskiptaþvingana...
Bílstjóri burðardýra í gæsluvarðhaldi – Breytti um nafn á Íslandi
📅 24.09.2026 👁️ 2
Bílstjóri burðardýra í gæsluvarðhaldi – Breytti um nafn á Íslandi
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að maður sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 15. október.
Aðgerðasinninn sem skvetti málningu yfir blaðaljósmyndara sakfelldur fyrir hótanir í garð lögreglukonu
📅 24.09.2026 👁️ 2
Aðgerðasinninn sem skvetti málningu yfir blaðaljósmyndara sakfelldur fyrir hótanir í garð lögreglukonu
Palestínski aðgerðasinninn Naji B. A. Asar, sem vakti athygli sumarið 2025 fyrir að skvetta rauðri málningu yfir ljósmyndara Morgunblaðsins, í mótmæla...
Boðað til mótmæla á Allsherjarþingi SÞ
📅 24.09.2026 👁️ 2
Boðað til mótmæla á Allsherjarþingi SÞ
Boðað hefur verið til mótmæla við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í dag vegna komu Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Hann heldur ræðu á a...
3-year-old girl drowns in holiday home pool in Lanzarote
📅 24.09.2026 👁️ 2
3-year-old girl drowns in holiday home pool in Lanzarote
A three-year-old girl has died after a drowning incident in the swimming pool of a holiday home in Tinajo, Lanzarote. The incident happened yesterday ...
Man jailed for bottle throwing at Eastney migrant protest
📅 24.09.2026 👁️ 2
Man jailed for bottle throwing at Eastney migrant protest
Del Somerville, 42, pleaded guilty to violent disorder following an overnight protest at Eastney.
Hundur Ástríðar Noregsprinsessu allur
📅 24.09.2026 👁️ 2
Hundur Ástríðar Noregsprinsessu allur
Norska ríkisútvarpið NRK hefur fengið staðfest frá konungsfjölskyldunni að Wilma, hundur Ástríðar Noregsprinsessu, hafi drepist fáeinum dögum eftir að...
Pawel leggur frum­varp Gríms um netsölu á­fengis fram á ný - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Pawel leggur frum­varp Gríms um netsölu á­fengis fram á ný - Vísir
Áfengi er þegar selt á netinu hér á landi. Pawel segir skynsamlegt að setja þeirri starfsemi skýrar reglur sem taki mið af viðskiptafrelsi og áhyggjum...
Um 30 manns inn­lyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Um 30 manns inn­lyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu - Vísir
Þetta staðfestir Anca Elena Cristea, yfirlandvörður í Landmannalaugum, í samtali við fréttastofu. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Starfsmaður Vegager...
Watch: Trump anticipated Xi's visit for months
📅 24.09.2026 👁️ 2
Watch: Trump anticipated Xi's visit for months
The BBC's Sarah Smith is at the White House, explaining how President Donald Trump prepared for Chinese President Xi Jinping's visit.
Watch: Here's why Trump's been so keen on Xi's visit
📅 24.09.2026 👁️ 2
Watch: Here's why Trump's been so keen on Xi's visit
President Donald Trump has been talking about Chinese President Xi Jinping's visit for months, the BBC's Sarah Smith looks at why.
Alvarlegt fyrir málþroska að minna sé spjallað við börn
📅 24.09.2026 👁️ 2
Alvarlegt fyrir málþroska að minna sé spjallað við börn
Íslensk málnefnd kallar eftir vitundarvakningu um mikilvægi þess að samskipti við börn fari í meiri mæli fram á mæltu máli og augliti til auglitis. Þö...
Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi - Vísir
Breskir slúðurmiðlar keppast nú við að greina frá þessu. Davide skaust upp á stjörnuhiminninn árið 2022 þegar hann keppti í bresku raunveruleikaþáttun...
Aftur stríð í Eþíópíu - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Aftur stríð í Eþíópíu - Vísir
Friður hefur ríkt á svæðinu í fjögur ár en þar áður stóðu yfir grimmileg átök milli sömu fylkinga. Undanfarna mánuði hefur spennan aukist mikið aftur ...
Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið - Vísir
Tilkynnt var í maí að hópur sérfræðinga hefði ákveðið að það sem áður var kallað „polycystic ovary syndrome“ yrði hér eftir kallað „polyendocrine meta...
Sauð upp úr á Alþingi þegar Inga varð bálreið eftir harða sókn Guðrúnar - „Væri nær að stíga inn í eiginn skítapott“
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sauð upp úr á Alþingi þegar Inga varð bálreið eftir harða sókn Guðrúnar - „Væri nær að stíga inn í eiginn skítapott“
Óhætt er að segja að neistaflug hafi orðið á Alþingi rétt í þessu í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins ...
Ólga út af húsbyggingu Elísabetar Ronaldsdóttur í Vesturbænum - „Ég held að það sé verið að gera fíl úr mýflugu“
📅 24.09.2026 👁️ 1
Ólga út af húsbyggingu Elísabetar Ronaldsdóttur í Vesturbænum - „Ég held að það sé verið að gera fíl úr mýflugu“
Ólga er meðal nágranna og innan borgarkerfisins út af endurbyggingu húss við Drafnarstíg 3 í Vesturbæ Reykjavíkur. Kvikmyndagerðarkonan Elísabet Ronal...
Stóra lögregluaðgerðin: Sautján voru handteknir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Stóra lögregluaðgerðin: Sautján voru handteknir
Alls voru 17 handteknir í umfangsmiklum lögregluaðgerðum á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag. Þetta kemur fram í viðtali mbl.is við Elínu Agnesi Eide Kri...
Developer fined £1m after man killed by falling window
📅 24.09.2026 👁️ 1
Developer fined £1m after man killed by falling window
Mick Ferris was crushed when the 130kg window fell from The Corniche building in Vauxhall.
Vara við skriðuhættu á Vestfjörðum og Ströndum
📅 24.09.2026 👁️ 1
Vara við skriðuhættu á Vestfjörðum og Ströndum
Veðurstofan varar við úrkomu og auknum líkum á skriðuföllum á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Talsverð úrkoma er þar og heldur áfram fram á sunn...
Annað inn­brotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Annað inn­brotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ - Vísir
„Rétt fyrir klukkan sex í morgun þá er brotist inn hjá okkur. Það er maður sem mætir með sleggju og kemst þarna í gegnum rúðuna okkar. Rúðurnar okkar ...
105-year-old investigated over murders at Nazi PoW camp in Germany
📅 24.09.2026 👁️ 1
105-year-old investigated over murders at Nazi PoW camp in Germany
The suspect is alleged to have been an accessory to murder at the Stalag 326 camp, where tens of thousands of Soviet PoWs died.
Komin á bólakaf í haustið
📅 24.09.2026 👁️ 1
Komin á bólakaf í haustið
Veðurfræðingur segir að lægðagangur haustsins sé hafinn. Gular viðvaranir hafa verið í mörgum landshlutum og fleiri eiga eftir að bætast við.„Það hefu...
Sau­tján voru hand­teknir í að­gerðum lög­reglu - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sau­tján voru hand­teknir í að­gerðum lög­reglu - Vísir
Rannsóknin snýr að fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Lögregla gerði húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagði hald á fjármuni og fíkniefni. M...
Fá ekki aðgang að Hvíta húsinu þrátt fyrir skipan dómstóls
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fá ekki aðgang að Hvíta húsinu þrátt fyrir skipan dómstóls
Þrátt fyrir bráðabirgðaúrskurð dómstóls um að gefa eigi fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu var þeim ekki hleypt inn í morgun....
White House 'repeatedly violated' court order to restore press access, say CNN, Politico and MS Now
📅 24.09.2026 👁️ 1
White House 'repeatedly violated' court order to restore press access, say CNN, Politico and MS Now
Employees from CNN, Politico and MS Now reported being denied entry, with some having passes confiscated.
Trump media ban: White House restores access to CNN, Politico and MS NOW after judge's order
📅 24.09.2026 👁️ 2
Trump media ban: White House restores access to CNN, Politico and MS NOW after judge's order
CNN, Politico and MS NOW were allowed back into the White House after some of their staff were earlier turned away.
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“ Guð­rún Haf­steins­dótt­ir krafði Ingu Sæ­land svara um hver hafi ákveð­ið af­sögn Guð­mund­...
Inga spurð út í Guð­mund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Inga spurð út í Guð­mund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ - Vísir
Málið hefur verið í umræðunni um nokkurt skeið eftir að Guðmundur Ingi greindi frá því að Inga Sæland hefði gert honum að segja af sér ráðherradómi. Í...
Why did an OpenAI system hack Australia's health system - and can it be stopped in the future?
📅 24.09.2026 👁️ 2
Why did an OpenAI system hack Australia's health system - and can it be stopped in the future?
News that an automated AI agent hacked a government IT system raises big questions about regulating the tech.