Lögregla var með mikinn viðbúnað við Gránufélagsgötu á Akureyri í gærkvöldi og tók sérsveit ríkislögreglustjóra þátt í aðgerðunum.
Í frétt RÚV kemur fram að einn gisti fangaklefa lögreglu vegna málsins, en aðgerðum á vettvangi lauk á öðrum tímanum í nótt. Í fréttinni segir að lögregla hafi verið með mikinn viðbúnað þegar og fjórir lögreglubílar og einn sjúkrabíll hafi sést á vettvangi.
Lögregla kvaðst ekki geta gefið frekari upplýsingar um málið þegar eftir því var leitað.