Ákvörðun Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, um að aflétta leikbanni bandaríska sóknarmannsins Folarins Baloguns hlaut í gær mikla gagnrýni, einkum frá knattspyrnusamböndum í Evrópu, en Balogun átti að taka út leikbannið í leik Bandaríkjanna og Belgíu í 16-liða úrslitum HM sem fram fór í nótt.
Balogun, sem er lykilmaður í sóknarleik Bandaríkjanna, var rekinn út af fyrir að því er virtist meinlaust brot á varnarmanni í sigurleik Bandaríkjanna gegn Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum HM, en dómari leiksins ákvað upphaflega að dæma ekki aukaspyrnu fyrir brotið.
Þegar myndbandsdómarar fengu að skoða atvikið í hægri endursýningu sást þó að Balogun hafði farið of hátt með takkaskó sína og beint í kálfann á leikmanni Bosníu. Ákvað dómarinn því að senda hann út af fyrir „grófan leik“. Var mál ýmissa sparkspekinga að atvikið hefði fyrst og fremst verið óheppni fyrir Balogun, frekar en að hann hefði ætlað sér að fremja leikbrotið.
Þá þótti sumum sem refsingin væri óþarflega hörð. Siðareglur FIFA um agamál heimila ekki áfrýjun gegn beinum rauðum spjöldum og embættismenn frá FIFA og bandaríska knattspyrnusambandinu staðfestu eftir leikinn að ekki yrði hægt að skjóta refsingunni til áfrýjunar. Hins vegar tilkynnti FIFA óvænt um helgina að samkvæmt 27. grein agareglna sambandsins yrði bannið fellt úr gildi þó að rauða spjaldið stæði áfram á skrá Baloguns í eitt ár til reynslu. Sagði í ákvörðun FIFA að ef Balogun fremdi „annað brot af svipuðu eðli og alvarleika“ skyldi hann taka út eins leiks bannið.
Fagnað eða fordæmt
Ekki stóð á viðbrögðum og þar skipti mjög í tvö horn. Donald Trump Bandaríkjaforseti þakkaði t.d. FIFA sérstaklega fyrir „að gera það rétta í stöðunni og snúa við þessu mikla óréttlæti!“ en fjölmiðlar bæði í Evrópu og Bandaríkjunum greindu fljótlega frá því að Trump hefði hringt í forseta FIFA, Gianni Infantino, til þess að knýja á um að leikbanninu yrði hnekkt.
Staðfesti Trump það á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær. Sagðist hann hafa hringt, þar sem hann hefði ekki talið dóminn réttan. „Allt sem ég gerði var að biðja um endurskoðun. Ég sagði ekki að það þyrfti að gera þetta,“ sagði Trump, sem bætti við að dómari leiksins, hinn brasilíski Raphael Claus, væri „mjög grunsamlegur“.
Belgar hafa ekki leynt reiði sinni yfir málinu. Í harðorðri yfirlýsingu sakaði Konunglega belgíska knattspyrnusambandið FIFA um að brjóta sínar eigin reglur og útilokaði ekki möguleikann á lagalegum aðgerðum. „Við erum furðu lostin yfir þessari ákvörðun,“ sagði í yfirlýsingunni.
Utanríkisráðherra landsins, Maxime Prevot, sagði í gær að ef símtal Trumps væri raunveruleg ástæða fyrir ákvörðuninni væri það „gróft brot á helstu grundvallarreglum fótbolta og íþrótta“.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, sendi svo frá sér yfirlýsingu í gær þar sem það fordæmdi FIFA harðlega fyrir ákvörðunina. Sagði í yfirlýsingu UEFA að alþjóðasambandið hefði „farið yfir öll strik“ og að ákvörðunin gæti dregið dilk á eftir sér fyrir knattspyrnuna sem íþrótt í heild sinni. „Við lýsum yfir furðu okkar á svo fordæmalausri, óskiljanlegri og óréttlætanlegri ákvörðun.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.