Um það bil fimm þúsund bandarískir hermenn verða kallaðir brott frá Þýskalandi á næstunni að fyrirskipun stríðsmálaráðherrans Petes Hegseth. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að brotthvarfinu verði lokið á næstu sex til tólf mánuðum.
Donald Trump forseti hótaði fyrr í vikunni að fækka hermönnum í Þýskalandi vegna deilna við Friedrich Merz um afstöðu hans til stríðsins gegn Íran. Merz ergði forsetann sérstaklega með þeim orðum að Íranar hefðu niðurlægt Bandaríkin við samningaborðið. Þá spurði Trump hvort kanslaranum þætti í lagi að Íranar kæmu sér upp kjarnorkuvopnum.
Hann vissi greinilega ekkert hvað hann væri að tala um. Ráðuneytið segir ákvörðunina hins vegar byggja á ítarlegu endurmati á þörfinni fyrir herlið í löndum Evrópu, hún sé viðurkenning á raunverulegum aðstæðum á vettvangi.
Trump hefur á báðum kjörtímabilum sínum hótað að fækka hermönnum í Evrópu enda ættu ríki álfunnar sjálf að sinna eigin vörnum fremur en að treysta á Bandaríkin. Forsetinn sagðist á fimmtudaginn íhuga að kalla hermenn brott frá Ítalíu og Spáni vegna andstöðu leiðtoga ríkjanna við stríðsreksturinn í Íran.
Þýski varnarmálaráðherrann Johann Wadephul segist í raun sallarólegur, stjórnvöld séu viðbúin fækkun í herliði Bandaríkjanna þótt ólíklegt sé að af henni yrði í stærri herstöðvum á borð við Ramstein. Allar breytingar verið ræddar af yfirvegun á vettvangi Atlantshafsbandalagsins.