Reyk og óþef lagði yfir suðurhluta Moskvu í nótt og í morgun eftir umfangsmiklar drónaárásir Úkraínumanna sem beindust meðal annars að olíuhreinsunarstöð í útjaðri borgarinnar.
Drónarnir hæfðu nokkra staði í Moskvu en aðaltilgangurinn virðist hafa verið að stöðva starfsemi mikilvægrar olíuhreinsistöðvar í Kapotnija-héraði skammt frá borginni. Árásin kom Moskvubúum algjörlega í opna skjöldu og víða mátti sjá fólk lýsa ótta á samfélagsmiðlum.
Myndir sýna svartan reyk stíga upp frá olíuhreinsistöðinni. Sá reykur leiddi meðal annars til þess að flugvellinum í Moskvu var lokað í nokkrar klukkustundir og var nokkur hundruð flugferðum aflýst. Rýma þurfti stærsta flugvöll landsins, Sheremetjevo, um tíma. Sá flugvöllur er sá níundi stærsti í Evrópu.
Annar dróni hæfði íbúðahús í Moskvu-héraði og brak úr honum olli eldsvoða í verslunarmiðstöð nærri úthverfi Moskvuborgar. Þá var einn drepinn og tveir særðir í árás í Rostov-héraði í suðurhluta Rússlands.
Pútín með leiðtogafund á sama tíma
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu fagnaði árásunum á samfélagsmiðlum og sagði þær réttlætanleg viðbrögð við árásum Rússa. Þar vísaði hann meðal annars í stóra drónaárás á Kyiv og fleiri borgir fyrr í vikunni þar sem klaustur á heimsminjaskrá var sprengt.
Rússnesk loftvarnarkerfi skutu niður um 180 dróna sem nálguðust Moskvu, að sögn Sergei Sobjanin borgarstjóra Moskvu. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir að alls hafi 500 úkraínskir drónar verið skotnir niður í Rússlandi.
TASS fréttastofan í Rússlandi segir árásina þá stærstu á Moskvu í að minnsta kosti tvö ár. Hún átti sér stað á sama tíma og Vladimír Pútín forseti Rússlands hélt leiðtogafund þjóða í Suðaustur-Asíu í borginni Kazan, sem er um 700 kílómetrum austan við Moskvu.