Úkraínski flugherinn segir skort á loftvarnarflaugum hafa orðið til þess að ekki tókst að skjóta niður neinar eldflaugar í stórfelldri árás Rússa á Kyiv í gærkvöld. Forseti landsins varar við áframhaldandi árásum næstu daga.
Í það minnsta átján voru drepnir og tugir særðust þegar Rússar gerðu miklar flugskeyta- og drónaárásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Þetta er önnur stóra árásin á Kyiv á innan við viku en á fimmtudag voru 31 drepnir þegar Rússar gerðu umfangsmestu árás á borgina frá upphafi innrásarinnar í febrúar 2022.
Í samtali við erlenda fjölmiðla segir úkraínski flugherinn alvarlegan skort á loftvarnarflaugum hafa verið ástæðu þess að ekki tókst að skjóta niður neina af þeim 23 eldflaugum sem Rússar skutu á Kænugarð í gær.
Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, segir árásina hafa samanstaðið af 68 eldflaugum og 351 árásardróna.
Hann segir nóttina hafa verið ógnvekjandi fyrir íbúa borgarinnar. Fjöldi dróna hafnaði á fjölbýlishúsum og björgunarsveitir reyndu að ná til fólks sem sat fast undir rútunum. Zelensky hefur hvatt bandamenn Úkraínu til að efla stuðning sinn við loftvarnarkerfi landsins og koma þannig í veg fyrir frekari eyðileggingu af völdum rússneska hersins.