Evrópusambandið hefur samþykkt 90 milljarða evra lán til Úkraínumanna, auk þess að innleiða nýjar refsiaðgerðir gegn Rússum. Gert er ráð fyrir að tveimur þriðju verði varið í að efla varnir Úkraínu.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, og Antonio Costa, forseti leiðtogaráðsins, funduðu með Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta í dag. Þau gera ráð fyrir að fyrstu greiðslur berist til Úkraínumanna á næstu vikum eða mánuðum.
„Við erum að verja evrópsk gildi“
Costa sagði næsta skrefið vera að hefja viðræður um aðild Úkraínu að sambandinu. Zelensky sagði mikilvægt að Úkraína fengi ekki aðeins táknræna aðild.
„Við erum að verja evrópsk gildi. Ég tel okkur eiga skilið fulla aðild að ESB.“
Staða Úkraínu í stríðinu væri sterkari en nokkru sinni fyrr.
Von der Leyen sagði áætlanir gera ráð fyrir því að fyrsti hluti lánsins yrði greiddur til Úkraínumanna á næstunni. 45 milljarðar evra verði greiddir út á þessu ári og jafn mikið á því næsta.
Zelensky sagði að lánið yrði nýtt í framleiðslu og kaup á vopnum og undirbúning ómissandi innviða fyrir næsta vetur. Rússar gerðu þungar árásir á úkraínska orkuinnviði á liðnum vetri og ollu útbreiddu rafmagnsleysi.
Evrópuþingið samþykkti stuðningspakkann í febrúar en lánið komst ekki í gegn fyrr en nú vegna andstöðu Ungverja og Slóvaka. Fulltrúar ríkjanna féllust á tillöguna á fastafundi aðildarríkja ESB í Brussel eftir að Úkraínumenn tilkynntu að rússnesk olía myndi renna á ný um leiðslu sem liggur um Úkraínu til Ungverjalands og Slóvakíu. Leiðslan hafði skemmst í árásum Rússa.
Heitir enn frekari stuðningi
Auk stuðningspakkans voru einnig samþykktar frekari refsiaðgerðir gegn Rússum. Þetta er tuttugasti refsiaðgerðapakki Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi. Þær beinast einna helst að olíuiðnaði Rússlands og svokölluðum skuggaflota, auk rússneskra banka og rafmyntaviðskipta.
Zelensky sagði mikilvægt að knýja Rússa að samningaborðinu. Von der Leyen hét að ESB myndi halda áfram að þrýsta á Rússa.
„Auki Rússar hernaðarþunga sinn gagnvart Úkraínu mun Evrópa efla stuðning sinn enn frekar.“