Týndi maðurinn í Eyjum fannst
Lögreglan bað um aðstoð við að finna mann sem sást síðast í Vestmannaeyjum í morgun.
Maðurinn sem lögreglan í Vestmannaeyjum leitaði að í kvöld er fundinn. Hann hafði ekki sést frá því klukkan 7 í morgun.
Maðurinn, sem er grannvaxinn og 183 sentímetrar á hæð, var íklæddur ljósdrapplituðum buxum, ljósri hettupeysu og svörtum stuttum jakka yfir. Hann hafði meðferðis lítinn svartan bakpoka.
Þeir sem höfðu orðið hans varir voru beðnir um setja sig í samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í gegnum 112.
„Takk fyrir veitta aðstoð, maðurinn er kominn í leitirnar,“ sagði lögreglan í pósti til fjölmiðla á ellefta tímanum í kvöld.