Tveimur mönnum frá Litháen, sem báðir eru tæplega 36 ára gamlir, hefur verið birt fyrirkall og ákæra í Lögbirtingablaðinu, vegna innbrots og þjófnaðar á heimili í Hafnarfirði þann 27. febrúar árið 2024.
Samkvæmt ákæru brutust mennirnir inn í íbúð á fyrstu hæð í götu í Hafnarfirði, með því að spenna upp svaladyr. Stálu þeir skartgripum úr íbúðinni að verðmæti rúmlega tvær og hálf milljón króna.
Einkaréttarkrafa er gerð í málinu að hálfu brotaþola sem krefst í bætur þeirrar fjárhæðar sem skartgripirnir eru metnir á, en gullsmiður hefur lagt mat á tjónið.
Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 25. júní næstkomandi. Mennirnir eru í fyrirkalli hvattir tli að mæta fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Mæti þeir ekki fyrir dóm kann það að vera metið svo að þeir viðurkenni brotið og dómur verður kveðinn upp að þeim fjarstöddum.