Ökumaður bíls sem keyrði inn í mannfjölda í miðborg Leipzig í Þýskalandi hefur verið handtekinn.
Enn er margt óljóst, í upphafi höfðu þýskir miðlar eftir borgaryfirvöldum að tveir væru látnir. En þýski miðillinn MDR segir lögreglu hafa leiðrétt þær fregnir og í raun hafi aðeins einn dáið.
Atvikið átti sér stað í miðborg Leipzig og fjöldi viðbragðsaðila kom fljótlega á vettvang. Lögreglan í Saxlandi greinir frá því á X að ökumaðurinn hafi verið handtekinn.
Í annarri færslu biður hún fólk að deila ekki óstaðfestum myndum og myndskeiðum. „Leitið upplýsinga hjá yfirvöldum eða viðurkenndum fréttastofum. Falsfréttir tefja fyrir rannsókn málsins.“
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum frá lögreglunni í Saxlandi.