Í dagbók lögreglu kemur fram að viðbragð hafi verið mikið hjá bæði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Maðurinn hafi verið handtekinn skömmu síðar.
„Það var tilkynnt um eldinn um hálf eitt,“ segir Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Allt tiltækt lið sent
Hann segir allar stöðvar sendar á vettvang, fjóra dælubíla.
„Það tók smá tíma að finna eldinn af því að þetta voru erfiðar aðstæður. Það var mikill reykur og reykur um glugga hér og þar á húsinu. Við sendum inn tvö reykkafarapör til að finna eldinn.“
Hann segir að vegna þess að eldurinn kom upp í kjallara hafi reykur farið um stigahús og nærri allt húsið. Hann segir slökkvistarfi hafa lokið um klukkan fjögur í nótt.
Hótelið er á Laugavegi 16, í hjarta Hótels Skjaldbreiðar, en í sama húsi er fataverslunin Andrá og kemur fram í frétt RÚV um málið að líklega séu skemmdir þar líka.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.