Tveggja ára stúlka lést eftir að hafa fengið hitaslag á Galiciu-héraði á Norðvestur-Spáni á miðvikudag. Faðir stúlkunnar gleymdi henni óvart í bíl sínum þegar hann fór til vinnu samkvæmt frétt The Guardian. Hann hafði keyrt eldri börn í skólann en á leið sinni á leikskólann með stúlkuna fékk hann símtal sem truflaði hann við aksturinn. Faðirinn keyrði því beint til vinnu án þess að koma við í leikskólanum og gleymdi stúlkunni í bílnum.
Þegar móðir stúlkunnar ætlaði að sækja hana kom í ljós að hún var ekki þar en þegar upp komst var það of seint. Stúlkan lést úr hitaslagi eftir að hafa verið í bílnum í margar klukkustundir. Bæjaryfirvöld í Brión hafa lýst yfir tveggja daga sorg og stúlkunnar verður minnst með mínútu þögn í bænum í dag. Lögregluyfirvöld rannsaka málið.
Mikill hiti hefur verið verið á Spáni síðustu daga, allt að 38 stig sums staðar á Suður-Spáni. Slíkur hiti er vanalega ekki fyrr en um mitt sumar á þessum slóðum. Veðurfar hefur verið að breytast á Spáni og hitabylgjur og skógareldar æ algengari.