Átta gistu í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt og voru alls bókuð 54 mál í kerfið þeirra á milli klukkan 17 og fimm í morgun.
Í dagbók kemur fram að lögregla hafði afskipti af töluverðum fjölda ökumanna vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.
Til vandræða á hóteli
Í dagbók kemur einnig fram að lögreglumenn á stöð 3, í Breiðholti og Kópavogi, hafi haft afskipti af manni sem var til vandræða á hóteli. Hann var kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt.
Hjá lögreglustöð 4, í Grafarvogi-Mosfellsbæ-Árbæ, var tilkynnt um þjófnað í verslun. Fram kemur í dagbók að ekki hafi verið hægt að leysa málið á vettvangi og að það sé í ferli hjá rannsóknardeild.