Tvær konur, önnur erlend en hin íslensk, hafa verið dæmdar í tveimur aðskildum málum fyrir að hrækja upp í munn lögreglumanna. Báðar hlutu þær skilorðsbundna fangelsisdóma.
Hin íslenska kona var dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa í tvígang hrækt á lögreglumenn. Í fyrra skiptið þann 29. apríl árið 2024 aftan við lögreglustöðina við Hverfisgötu. Þá hrækti hún á vesti og í andlit lögreglumanns og fékk hann hráka í munn sinn.
Seinna tilfellið var þann 4. maí árið 2025 við brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Hrækti konan þá í andlit lögreglumanns og fékk hann hrákann í hægra augað og við munnvik.
Játaði hún brot sín og hlaut 60 daga skilorðsbundinn dóm til tveggja ára. Auk þess var henni gert að greiða skipuðum lögmanni sínum rúmar 200 þúsund krónur.
Í sama dómstól var erlend kona dæmd fyrir hráka. Það er kvöldið 23. mars árið 2024 þegar hún hrækti í andlit lögreglumanns í aftursæti lögreglubifreiðar sem ekið var um Hverfisgötu. Fór hrákinn í munn lögreglumannsins og hægra auga hans.
Játaði hún einnig brot sitt og hlaut 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm til tveggja ára. Var henni gert að greiða rúmar 200 þúsund krónur í málsvarnarlaun og 50 þúsund í annan sakarkostnað.