Ekkert lát er á mótmælum gegn framkvæmdum við ferðamannaparadís á verndarsvæði í Albaníu, sem hafa staðið linnulaust í yfir mánuð. Mótmælin í gærkvöld voru þau fjölmennustu hingað til.
Jared Kushner og Ivanka Trump, tengdasonur og dóttir Bandaríkjaforseta, eru meðal fjárfesta í uppbyggingunni sem mótmælt er. Þau, ásamt öðrum fjárfestum, ætla að byggja ferðamannaparadís við hluta strandlengju Albaníu, sem á að ná yfir hluta eyjunnar Sazan. Þar er fyrir þjóðgarður og griðastaður um 200 fuglategunda sem sumar eru í útrýmingarhættu.
Mótmælin hafa verið kölluð Flamingóa-byltingin því staðurinn er einnig griðasvæði flamingóa. Eins hefur fólk haldið á skiltum sem á stendur að Albanía sé ekki til sölu.
Mótmælendur telja málið lykta af spillingu og krefjast afsagnar forsætisráðherrans, Edi Rama. Þeir segja almenna umræðu um málið hafa verið litla áður en áformin voru samþykkt.
Fyrst var greint frá byggingu ferðamannaparadísarinnar 2024. Mótmælin brutust út í lok maí eftir að svæðið var girt af og stórvirkar vinnuvélar sáust þar.
Mótmælin hafa að mestu verið friðsamleg. Á fimmtudag reyndu mótmælendur að hindra þingmenn í að komast inn í þinghús landsins. Sumir hentu eggjum, steinum og öðru í lögreglu sem beitti táragasi. Fimmtán lögreglumenn særðust og tuttugu og fimm mótmælendur voru handteknir.