Úr varð heldur betur skemmtileg viðureign enda menn með mikið keppnisskap í báðum liðum.
Úrslitin ræðast í næstsíðustu spurningunni. Þá var spurt um mann sem starfað hefur með tónlistarmanninum Páli Óskari. Hann vann með honum að plötunni Stanslaust stuð sem kom út árið 1993. Tveir menn unnu plötuna með Páli. Annar þeirra var Jóhann Jóhannsson heitinn og spurt var um hinn. Sá er einkar hæfileikaríkur tónlistarmaður þótt hann sé almennt þekktari á öðru sviði.
Hér að neðan má sjá hvernig úrslitin réðust í viðureigninni og má með sanni segja að það hafi verið nokkuð ótrúlegt. Þeir sem vilja ekki sjá úrslitin og eiga eftir að horfa á þáttinn í heild sinni á Sýn+ ættu ekki að horfa á myndbrotið hér að neðan.