Sérfræðingar hafa komist að niðurstöðu um hvaða skyr sé það gómsætasta á Norðurlöndum og það er ekki framleitt á Íslandi. Örfáum prósentustigum munar á því besta og næstbesta. Hillur stórmarkaða svigna undan skyrdollum af ýmsum gerðum frá fjölda framleiðenda.
Mjólkurvöruframleiðendur sendu einn dómara hver til Alþjóðlegu matvælakeppninnar sem haldin var í danska bænum Herning sem smökkuðu og dæmdu gæði alls konar mjólkurafurða á borð við osta, smjör, jógúrt og skyr. Dómararnir störfuðu í hópum og mátu vörurnar út frá fjórum þáttum: útliti, áferð, lykt og bragði.
Þeir gáfu einkunn á kvarðandum einn til fimmtán. Mjög lítið skilur oft á milli hefur danska ríkisútvarpið hefur Jesper Frederiksen, fulltrúa Thise mjólkurvöruframleiðandans. Besta skyr Norðurlandanna er frá Arla og með vanillubragði og hafði til að bera rétta þykkt, áferð og sætu auk þess bragðs sem einkenna ber sýrðar mjólkurvörur.
Það hlaut 14,6 stig og hreint Thise skyr hlaut 14,52 stig í öðru sæti. Það var lykt og bragð sem skar þar úr segði Frederiksen. Arla er stærsta samvinnufélag í mjólkuriðnaði í Evrópu. Thise hefur um árabil framleitt íslenskt skyr í umboði MS fyrir erlenda markaði, meðal undir vörumerkinu Ísey Skyr.
Dómararnir voru sammála um að vanilla ætti best við þá bragðsinfóníu sem fylgir skyrinu, hún skapaði fullkomið jafnvægi milli súrs og sæts. Ýmis skyr frá MS og Örnu hlutu milli 12 og 13 stig og voru þannig í silfurflokki keppninnar.
Frederiksen kvaðst þess fullviss að Thise tæki gullið næsta ár. Skyr er hefðbundin íslensk mjólkurvara en vöruheitið er ekki verndað. Íslenskir framleiðendur hafa fært framleiðsluna meðal annars til Evrópu og stór hluti er framleiddur á Jótlandi í Danmörku samkvæmt íslenskri hefð og uppskriftum.