Landris við Svartsengi heldur áfram með nokkuð stöðugum hraða en jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur verið lítil. Þetta kemur fram í nýjustu samantekt Veðurstofunnar á stöðu mála á Reykjanesskaga.
Enn er líklegast að þessu ljúki með kvikuhlaupi sem gæti leitt til eldgoss. Óljóst er þó hvenær það kynni að gerast. Að sögn Veðurstofunnar eykst óvissan eftir því sem lengri tími líður frá síðasta kvikuhlaupi. Aðdragandinn gæti orðið stuttur líkt og við fyrri eldgos og kvikuhlaup á Sundhnúksgígaröð.
Þrýstingur byggist áfram upp á kvikusöfnunarsvæðinu á nokkurra kílómetra dýpi undir Svartsengi.