Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur sagði í Rauða borðinu á Samstöðinni á mánudagskvöld að mestu femínistar sem hún þekki séu múslimskar konur sem ganga með slæður. Í sama þætti fullyrti Sigursteinn Másson fréttamaður að glæpir múslima hér á landi séu hlutfallslega „miklu, miklu færri“ en glæpir sem Íslendingar fremja.
Þátturinn var sýndur 26. október undir yfirskriftinni „Hafi brotið lög“ og þar ræddi Björn Þorláksson við Magneu og Sigurstein um aukinn rasisma og ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Ölfusi, um múslima og innflytjendur.
Innblásnar af trúnni
Magnea sagði fólk oft innblásið af trú sinni og að mestu femínistar sem hún þekki séu „konur sem eru múslimar og ganga með slæður“.
„Þær eru innblásnar af sinni trú til að gera góða hluti,“ sagði Magnea. Hún bætti við að hún þekkti á hinn bóginn konur sem væru vestrænar og kristnar en væru ekki femínistar.
Skömmu áður hafði hún nefnt samtök múslimskra kvenna sem túlka trúna út frá jafnrétti og réttlæti og sagði að treysta ætti konum til að endurskilgreina hvað trúin segi í raun.
„Við eigum í raun og veru ekki að berjast gegn einhverri sérstakri trú heldur öfgum og bókstafstrú,“ sagði Magnea.
Þaðan vék hún máli sínu að „þessum hvíta kristna manni í valdastöðu í Ölfusi“. Hún sagði Elliða hafa brotið lög og vísaði til 233. greinar almennra hegningarlaga.
Umræðan um múslima á Íslandi hefur verið hávær síðustu daga.
„Það er ekki hægt að bera það saman“
Sigursteinn tók undir með Magneu. Hann spurði hvort Anders Behring Breivik hefði komið óorði á alla unga kristna Norðmenn með fjöldamorðunum í Noregi, enda hefði hann talið sig kristinn.
Hann sagði glæpi „í hópi þessa fólks sem við erum að tala um þarna, það er að segja múslima“, vera hlutfallslega „miklu, miklu færri“ hér á landi en glæpi sem framdir eru af Íslendingum.
„Það er ekki hægt að bera það saman,“ sagði Sigursteinn. „Það er svo mikill munur þar á milli.“
Hann sagði helsta muninn á múslimum og Íslendingum vera að „sjaldnast eru þau að drekka áfengi“. Í þeim hluta þáttarins nefndi Sigursteinn engar tölur máli sínu til stuðnings.
Myndskeið með ummælum þeirra beggja fóru í dreifingu á X á þriðjudagskvöld. Gerti, sem lýsir sér sem íslenskum þjóðernissinna, kallaði ummælin „veruleikafirringu“, jafnvel á mælikvarða Samstöðvarinnar.
Magnea segir að mestu femínistar sem hún þekki séu múslimskar konur sem ganga með slæðu.
— Gerti (@Gerti1122) October 27, 2026
Sigursteinn heldur því fram að múslimar á Íslandi fremji hlutfallslega mun færri glæpi en innfæddir Íslendingar.
Meira að segja á mælikvarða Samstöðvarinnar er þetta veruleikafirring á öðru… https://t.co/7WyLOZASxA pic.twitter.com/tDSelpiDf5
Hvað segja tölurnar
Engin opinber tölfræði á Íslandi greinir afbrot eftir trú. Lögreglan skráir grunaða eftir ríkisfangi og því er ekki hægt að sannreyna fullyrðingu Sigursteins með beinum hætti.
Nýtt mælaborð lögreglunnar nær yfir árin 2019 til 2025 og þar eru um sex þúsund einstaklingar skráðir grunaðir um brot á hverju ári.
Erlendir ríkisborgarar voru 41 prósent grunaðra árið 2025, en hlutfallið var 27 prósent árið 2020. Innflytjendur voru tæp 19 prósent landsmanna í byrjun árs 2025.
Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, hefur bent á að ferðamenn og skipulögð brotastarfsemi hafi áhrif á tölurnar og að þær sýni ekki innflytjendur sem fengið hafa íslenskt ríkisfang.
Árið 2025 voru 1,2 prósent íslenskra ríkisborgara skráð grunuð um brot. Hjá erlendum ríkisborgurum var hlutfallið 3,6 prósent, þrefalt hærra.