Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, segir mannskætt lestarslys í morgun vera mikið áfall. „Ég er miður mín yfir þessu alvarlega lestarslysi í Toledo,“ sagði Sanchez í færslu á samfélagsmiðlum. Hann sendi hlýjar kveðjur til þeirra sem lentu í slysinu og fjölskyldna þeirra.
30 manns, hið minnsta, biðu bana þegar tvær hraðlestir lentu í árekstri suður af Madríd, höfuðborg Spánar, í morgun. Tveir lestarvagnar fóru út af lestarteinunum. Enn er verið að meta aðstæður á slysstað. Talsmaður yfirvalda í Castilla-La-Mancha-héraði sagði við fjölmiðla að mögulega eigi eftir að koma í ljós að fleiri hafi farist í slysinu.
Níu mánuðir eru liðnir frá öðru mannskæðu slysi á Spáni. Þá lentu tvær hraðlestir, á vegum sama fyrirtækis og í morgun, í árekstri. Þar fórust 46 manns.
Í því slysi fór lest út af teinum og lenti á annarri lest sem kom úr gagnstæðri átt. Eftir það slys var töluverð umræða um viðhald á lestarinnviðum.
Fréttin var uppfærð eftir að fregnir bárust um að fleiri hafi farist í slysinu en í fyrstu var gefið út.