Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrum þingmaður, er ein þeirra sem furðar sig á uppsögnum borgarstjórnar í gær. Stöðugildum var fækkað um 74 í gær. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða þriðja og síðasta áfanga við fækkun stöðugilda frá því að núverandi meirihluti tók við í borginni í byrjun júní. „Eftir að hafa fylgst með uppsögnum í ráðhúsinu í gær spyr ég, hvað gerðist eiginlega á íslenskum vinnumarkaði? Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki, sem hefur ekki brotið af sér í starfi, út með skít og skömm?“
Helga Vala spyr hvað er að gerast á vinnumarkaði: „Hver setur nýja manneskju í verkefnið?“