Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, leiddi stýrihóp sem að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipaði. Stýrihópurinn mótaði löggæsluáætlun fyrir árin 2027 til 2031 og mun Grímur kynna áætlunina.
Auk þeirra flytja stutt erindi þau Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í rannsóknardeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, og Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri Norðurlands eystra, um skipulagða glæpastarfsemi, vörnina sem hægt er að veita á landamærum og öryggi lögreglumanna.