Donald Trump Bandaríkjaforseti segir umþóttunartíma Írana vera að renna út. Þeir þurfi að drífa í að semja um frið í stríði sem hefur kostað fjölda mannslífa, skekið Mið-Austurlönd og keyrt orkuverð í hæstu hæðir.
„Klukkan tifar fyrir Írani og þeir þurfa að bregðast hratt við, ella verður ekkert eftir til að semja um,“ skrifaði Donald Trump á samfélagsmiðil sinn Truth Social í gær.
Íranskir miðlar sögðu Bandaríkjamenn ekki hafa boðið neinar haldbærar málamiðlanir gagnvart tillögum stjórnvalda um leiðir til að ljúka stríðinu.
„Bandaríkjamenn halda áfram að krefjast tilslakana sem þegar hefur verið hafnað og það leiðir til pattstöðu í viðræðunum,“ hefur Mehr-fréttaveitan eftir stjórnvöldum. Pakistanski innanríkisráðherrann Mohsin Naqvi hitti forseta Íransþings og aðalsamningamanninn Mohammad Bagher Ghalibaf í Teheran í gær.
Sá síðarnefndi sagði að loknum fundinum að síðustu mánuðir hefðu sannað fyrir ríkjunum við Persaflóa að návist Bandaríkjanna skapaði fremur hættu en öryggi líkt og þau hefðu fram að þessu trúað. Pakistanar höfðu milligöngu um árangurslausar friðarviðræður milli háttsettra bandarískra og íranskra ráðamanna í apríl.