Donald Trump Bandaríkjaforseti deilir á hernað Ísraels í Líbanon í færslu á samfélagsmiðli sínum í dag. Þar segir hann að árásin á úthverfi höfuðborgarinnar Beirút í morgun, þar sem þrír voru drepnir, hefði ekki átt að eiga sér stað, sérstaklega ekki þegar friðarsamkomulag við Íran er innan seilingar.
Ísrael hefur gert fjölda árása á skotmörk í Líbanon síðustu daga og vikur þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi. Í morgun, þegar flest benti til þess að drög að friðarsamningi lægju fyrir, gerðu Ísraelsmenn enn og aftur árásir sem þeir segja að beinist að Hezbollah-hreyfingunni, vopnabræðrum Írana.
Það hleypti illu blóði í klerkastjórnina, sem sagði að það yrði ekki samið við Bandaríkin á meðan sprengjum rigndi yfir Líbanon.
Ísrael hafi brugðist of harkalega við
Trump hefur nú brugðist við því. Hann segir að þótt Ísrael hafi rétt á að verja hendur sínar hafi aðgerðin í morgun verið svar við lítilli og merkingarlausri árás þar sem engan sakaði. Það ætti ekki að verða til þess að trufla friðarferlið.
Trump segir að allir ættu að halda sér til hlés í bili. Ísrael ætti ekki að ráðast gegn Líbanon en hins vegar ætti enginn annar að ráðast á Ísrael.
„Þetta gæti orðið upphafið að löngum og fallegum friði,“ segir Trump í lok færslunnar. „Klúðrum þessu ekki!“