Donald Trump Bandaríkjaforseti mætti til Ankara í Tyrklandi í morgun þar sem hann tekur þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins (NATO). Á blaðamannafundi með gestgjafanum Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta viðraði hann enn óánægju sína með þau NATO-ríki sem neituðu að aðstoða Bandaríkin við stríðrekstur gegn Íran.
„Ítalía hafnaði okkur, Þýskaland hafnaði okkur og Frakkland hafnaði okkur,“ sagði Trump. „Ég var að prófa fólk.“
Spurður út í deilur sínar við Giorgiu Meloni, forsætisráherrra Ítalíu, sagði hann að honum fyndist hún ágætis manneskja. Hún hafi gert mistök með því að styðja hann ekki gegn Íran.
Miklu betra samband við Tyrkland
Hann hafi þú fundið sig knúinn til að sækja leiðtogafundinn þar sem hann er haldinn í Tyrklandi.
„Við eigum í miklu betra sambandi við Tyrkland. Tyrkland hefur verið miklu tryggari bandamaður en önnur ríki sem við hefðum haldið að yrðu okkur trygg.“
Trump boðaði að Bandaríkin myndi aflétta refsiaðgerðum sem settar voru á Tyrkland eftir að landið keypti loftvarnarkerfi af Rússlandi árið 2019.
Eftir að á hann var gengið varðandi lastmæli í garð NATO-ríkja sagði hann að Evrópa væri annar staður en fyrir 20 árum.
„Evrópuríkin ættu að fara varlega í málefnum innflytjenda og orkumála. Ef þau fara ekki varlega í þessum tveimur málaflokkum verður Evrópa eins og við þekkjum hana ekki til lengur.“
Enn af Grænlandi
Trump ítrekaði enn og aftur að Bandaríkin ættu að ráða yfir Grænlandi. Nokkuð sem ýfði fjaðrir Dana og annarra NATO-ríkja.
„Það spillti sambandi mínu við NATO vegna þess að Grænland gagnast Danmörku ekki,“ sagði hann. „Danmörk ver ekki fjármunum til Grænlands og hjálpar þeim ekkert. Grænland er hins vegar afar mikilvægt fyrir Bandaríkin og er umkringt skipum frá Kína og Rússlandi.“