Um var að ræða einkaflugvél sem sneri við eftir flugtak frá Butler Memorial-flugvellinum og hrapaði síðar við hraðbraut nærri Kansas-borg.
Staðarmiðillinn FOX4 greinir frá þessu og hefur eftir viðbragðsaðilum. Flugmálastofnun Bandaríkjanna og Rannsóknarnefnd samgönguslysa eru á vettvangi og kanna hvort einhverjir fallhlífarstökkvarar hafi verið búnir að stökkva út úr flugvélinni áður en hún hrapaði.
Lítið liggur fyrir um orsök slyssins eða hvers vegna flugmaðurinn sneri vélinni við eftir flugtak. Búið er að loka fyrir umferð um Business 49-hraðbrautina nærri flugvellinum um óákveðinn tíma.