Tók lamba­lærið, steikurnar og flat­kökurnar til skoðunar - Vísir

Tók lamba­lærið, steikurnar og flat­kökurnar til skoðunar - Vísir

Tók lamba­lærið, steikurnar og flat­kökurnar til skoðunar - Vísir

Ásrún Magnúsdóttir hefur undanfarin ár lagt leið sína upp að Hafravatni oft á viku til að skokka. Síðasta laugardag, þann 4. júlí, sneri hún heim úr hlaupatúrnum sem hún fór í austan við vatnið, í Þormóðsdal, með óvæntan feng.

Hundarnir hennar Ásrúnar stukku allt í einu af leið og brunuðu af stað þangað sem þeir höfðu þefað uppi lambalæri.Aðsend

„Ég fer núna reglulega og er að skokka og æfa mig fyrir Reykjavíkurmaraþonið og þeir eru voða góðir hundarnir oft, þeir eru bara svona hjá mér,“ segir Ásrún.

„Svo allt í einu svona skjótast þeir eftir einhverju upp í hlíð og eru ekki að koma þegar ég kalla, sem mér finnst mjög skrítið, þeir koma nú oftast,“ segir hún og útskýrir að „þá hafa þeir runnið á eitthvað og ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri.“

Næsta byggð er í að sögn Ásrúnar í um fimmtán hundruð metra fjarlægð og segist hún þegar hafa heyrt í þeim sem búa í því húsi. Þau hafi ekkert kannast við lambalærið. 

Þá fannst þeim fyrst líklegast að einhver hefði komið lærinu fyrir eftir að hafa eitrað það en við nánari athugun virkaði það nýkryddað og því hæpið að það hefði verið hugsað til annars en matargerðar.

Ásrún ákvað að taka lambalærið með sér úr hlaupatúrnum til öryggis ef það skyldi vera eitrað en svo fór hún aftur út að hlaupa með hundana tvo í gær, mánudaginn 6. júlí, og viti menn: þau fundu meiri mat í móanum.

„Ég kom inn á svipaðar slóðir, þá byrjaði ég að fara þarna upp eftir þar sem lambalærið var og þeir fara að þefa og eru að reyna að leita að fjársjóðnum sínum,“ segir hún. Lambalærið hafði legið stuttan spöl frá göngustíg sem liggur frá Hafravatni í Reykjavík.

„Svo ég fór örlítið lengra núna en síðast, ekkert mikið samt, bara svona rétt smá og þá aftur svona skýtur hundunum út af leiðinni og ég kíki og þá er þarna, ég veit ekki hvort það séu sirloin-steikur eða hvað þetta er,“ segir hún og bætir við: „Fínasta lambakjöt.“

Ekki einungis kjöt í grasinu

Hún segir kjötið hafa verið hrátt og ókryddað en að henni þætti ólíklegt að það hefði legið í frostlegi vegna þess að annars væri það blátt og mögulega væri efnalykt af því.

 Hundarnir hlýddu henni sem betur fer þegar hún skipaði þeim að snerta ekki við steikunum en til þess að gera málin enn undarlegri þá voru í grasinu einnig nokkrar heilar flatkökur, ósmurðar.

„Ég var ekkert að búast við þessu þarna og dró hundana svolítið fljótt frá þessu og ætlaði að fara aftur til baka og sækja þetta, ég var ekki með neinn poka í bílnum eða neitt,“ segir hún og bætir við: „Nema hundakúkapoka, þetta passaði nú ekki þar.“

Það er ekki svo mikil umferð fólks með hunda um svæðið og engin áningarsvæði eða neitt slíkt þarna þar sem hún fann matinn að sögn Ásrúnar. Þá segir hún ekki heldur vera neitt af útigrillum eða slíku á þessum kafla gönguleiðarinnar sem gæti útskýrt grillkjötið.

„Þetta er ekki einhver útivistarstaður og ég fann engin kol eða rusl þarna, engar umbúðir eða neitt.“

Tólfti jólasveinninn mögulega snemma á ferð

Ásrún birti færslu á Facebook-hópnum Hundasamfélagið þar sem hún vakti athygli á málinu og fjöldi ummæla safnaðist hratt og örugglega undir færslunni. Þá voru sumir sannfærðir um að stór fugl, svo sem hrafn, hefði gripið kjötið og flogið með það yfir svæðinu. Aðrir virtust á því að tólfti jólasveinninn, Ketkrókur, hefði farið árstíðavillt.

Ásrún fer reglulega út að hlaupa með hundana sína og fylgja þeir henni yfirleitt hvert spor. Aðsend

Ásrúnu fannst líklegt að lærinu hafi verið komið þarna fyrir fyrst á laugardag og svo restinni af matnum seinna.

„Kjötið virtist vera mjög ferskt. Ef þetta væri búið að vera síðan á laugardag þá væri það orðið þurrt,“ segir Ásrún og bætir því við að „svo er ég líka nokkuð viss um að það séu refagreni þarna.“

Ásrún hefur nú haft samband við Keldur, tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum, í von um að fá það athugað hvort kjötið innihaldi eitur. 

Þau bentu henni á það að heyra frekar í Matís, Miðstöð mælinga, rannsókna og þróunar fyrir matvælaframleiðslu á Íslandi,  sem bentu henni á að setja sig í samband við Matvælastofnun (MAST).

Hlaupatúrinn á laugardaginn síðasta hefur því undið þannig upp á sig að Ásrún sér fram á að gera sér ferð á skrifstofur MAST á Selfossi, sem er á opin frá 10:00 til 14:00, á næstu dögum.

Aldrei vitað annað eins

Sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, samtökum sem aðstoða við leit að týndum dýrum, segist ekki hafa fengið tilkynningar um eitraða kjötbita á þeim slóðum sem lambalærið og steikarbitarnir dúkkuðu upp á. Þá segist hún ekki vita til þess að lambalæri hafi áður verið notuð til þess að eitra fyrir hundum; yfirleitt sé notast við ódýrara kjöt svo sem pylsur.

„Við punktum allt saman hjá okkur, ég hef ekki fengið neitt af þessum stað nýlega,“ segir Eygló Anna Ottesen í samtali við blaðamann en hún segir algengt að notast sé við frostlög, músaeitur eða annað slíkt þegar fólk tekur sig til og eitrar viljandi fyrir dýrum.

Fáið þið reglulega tilkynningar um að eitrað hafi verið fyrir gæludýrum?

„Við fáum þetta kannski reglulega oft út af því að við fáum tilkynningar um þegar það sést til dæmis veikburða köttur. Þá hugsum við alltaf: hvað komst hann í?“ segir Eygló Anna.

Líkt og fyrr segir hefur Ásrún farið reglulega út að hlaupa undanfarið en hún er að undirbúa sig til að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinast með krabbamein.

Málefnið liggur henni því mjög nærri hjarta en hún missti pabba sinn fyrir tíu árum úr briskrabbameini og fyrir um hálfu ári greindist systir hennar með heilaæxli.

Hægt er að nálgast styrktarreikninginn hér.

Hefur þú upplýsingar sem gætu varpað ljósi á málið? Vísir tekur við fréttaskotum hér.

#flatkökurnar #lambalærið #steikurnar #til #tók


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262906169d/tok-lambalaerid-steikurnar-og-flatkokurnar-til-skodunar

📰 Aðrar fréttir

AI chip boom pushes Samsung profits to record $80bn
📅 08.10.2026 👁️ 2
AI chip boom pushes Samsung profits to record $80bn
The tech giant is also expected to get a boost from its latest folding devices that were launched in August.
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja að þrír óbreyttir borgarar hafi verið drepin og að 36 hafi særst í árásum á tvo alþjóðaflugvelli sem Hútar hafa lýst ábyr...
Virðist ekki muna eftir aftökunni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Virðist ekki muna eftir aftökunni
Lögmaður Christu Pike segir að legið hafi við því að hún yrði tekin úr öndunarvél eftir að hún var lögð inn á spítala og áður en hún komst til meðvitu...
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.Breska blað...
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu...
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylki...
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 2
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk...
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
📅 07.10.2026 👁️ 2
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
Passengers have described their anger after their itineraries changed to involve hours spent on coach trips instead.
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
📅 07.10.2026 👁️ 2
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
Downing Street said deeper co-operation in the face of rising hybrid threats from Russia would be high on the agenda during Burnham's first official v...
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
The decision comes after nearly half a million people cast their votes from a shortlist of 18 creatures.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 4
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 4
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 4
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 4
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 4
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 4
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 4
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 4
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
📅 07.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
The US death row inmate's legal team said at a press conference that she is now "conscious and speaking" after her failed execution.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 4
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 4
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 4
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.