Tjörvi hjólar harkalega í Hallgrím Helgason, segir hann rökþrota og kallar hann „erki libba“
Hann kallar þetta ekki einungis lélega umræðu, heldur beinlínis merki um að hugmyndafræðileg umræða sé farin að víkja fyrir einföldum stimplum og slagorðum.
Tvískinnungur og yfirborðskennd greining
Í færslu sinnir sinni rifjar Tjörvi upp eldri skrif Hallgríms þar sem hann hafi beitt svipuðum aðferðum gegn vinstrimönnum og kallað þá meðal annars pútínista. Að hans mati sýni það einfaldlega að Hallgrímur beiti alltaf sömu aðferðum óháð því hver sé skotmarkið hverju sinni.
Hann snýr gagnrýninni við og heldur því fram að það sé Hallgrímur sjálfur sem skorti dýpri skilning og greiningu á pólitík og kallar hann „erki libbann.“
Einnig tekur hann fram að Gunnar Smári Egilsson hafi sjálfur verið kallaður „Pútínisti“ fyrir skoðanir sínar.
Auk þess nefnir hann fleiri nafntogaða álitsgjafa sem hann kallar „miðju libba,“ þar á meðal Egil Helgason, og Illuga Jökulsson, sem hann segir nota sömu orðræðu þar sem uppnefni og einföldun ráði ferðinni.
Varar við pólitískum afleiðingum
Tjörvi heldur ekki aftur af sér og segir slíka umræðu ekki bara vera innihaldslausa heldur beinlínis skaðlega. Hún geti, að hans mati, ýtt undir fylgi við þá flokka sem gagnrýndir eru, þar sem kjósendur upplifi fyrirlitningu í sinn garð og spyr hvenær fólk ætli að fatta að vinstrið sé statt á versta stað sem það hefur nokkru sinni verið á einmitt vegna þessarar umræðuhefðar.