Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur tilkynnt að það framlengi á ný til þrjátíu daga sérstaka undanþágu frá banni við kaupum á rússneskri olíu.
Heimildin, sem rennur út 17. júní, takmarkast þó eins og áður við kaup á olíu sem nú þegar er um borð í rússneskum skipum á hafi úti. Þeim ríkjum sem eru í hvað viðkvæmastri stöðu gefst tækifæri til að nálgast rússneska olíu, sagði fjármálaráðherrann Scott Bessent þegar hann tilkynnti um framlenginguna í færslu á samfélagsmiðlum.
Hann sagði olíuna engum nýtast í tönkum skipa á siglingu. Þetta er í annað sinn sem Bandaríkin framlengja heimildina sem upphaflega var veitt í mars til að bregðast við olíuskorti vegna stríðsins gegn Íran.
Líkt og áður eru einstaklingar og fyrirtæki frá Íran undanþegin, einnig frá Norður-Kóreu, Kúbu og þeim svæðum Úkraínu sem Rússar hafa hernumið. Íranar hafa lokað að stærstum hluta fyrir siglingar um Hormússund síðan í febrúarlok.
Þar sigla olíuskip á friðartímum með fimmtung þeirrar olíu sem heimurinn þarfnast. Olíuverð hefur hækkað verulega síðustu mánuði. Bandarískir neytendur þurfa að greiða fimmtíu prósentum hærra verð fyrir eldsneytisgallonið núna en fyrir stríð.