Aðeins nokkrum klukkutímum áður en Donald Trump Bandaríkjaforseti mætir á leiðtogafund NATO í Ankara, var tilkynnt um milljarða dollara samninga um framleiðslu hergagna sem auka eiga varnargetu bandalagsins.
Nítján aðildarríki NATO, þar á meðal Noregur, Belgía, Lettland og Svíþjóð taka þátt í þessum samningum, sem snúast meðal annars um að setja á laggirnar flota af Airbus þotum sem dælt geta eldsneyti í aðrar flugvélar á lofti og kaup á eftirlitsdrónum sem framleiddir verða af bandaríska fyrirtækinu Northrop-Grumman.
Sænska fyrirtækið Saab, í samstarfi við Bombardier í Kanada, mun framleiða nýja kynslóð flugvéla, svokallaðar Golden Eye, sem taka eiga við af AWACS-vélum NATO, til að fylgjast með og samþætta hernaðaraðgerðir í lofti, á láði og legi. Minnst tíu slíkar vélar verða framleiddar á næstu árum.
„Þetta er stór dagur fyrir NATO, fyrir Saab, og fyrir Svíþjóð,“ sagði Ulf Kristerson forsætisráðherra Svíþjóðar á blaðamannafundi hér í Ankara í morgun. „Þegar við gengum í bandalagið, sögðum við að aðild Svíþjóðar myndi færa bandalaginu aukið landssvæði, en líka aukna getu,“ sagði Kristerson.
Tímasetningin engin tilviljun
Samningarnir sem kynntir voru í morgun hafa verið í undirbúningi í langan tíma, en tímasetningin á kynningu þeirra þykir áhugaverð. Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins er á næsta leiti, þar sem ljóst þykir að áhersla verður lögð á að draga úr þeim ágreiningi sem verið hefur milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og annarra aðildarríkja bandalagsins, meðal annars vegna kröfu Bandaríkjamanna um að hin ríkin verji meiru til varnar- og öryggismála.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sækja leiðtogafundinn fyrir hönd Íslands. Í dag sækir Þorgerður ráðherrafundi, en dagskrá leiðtoganna hefst með kvöldverði í boði forsetahjóna Tyrklands, þangað sem öðrum leiðtogum, þar á meðal Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta verður boðið. Sjálfur leiðtogafundurinn hefst svo fyrir hádegi á morgun.