Skúli segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, lögreglumenn á vettvangi eigi enn eftir að skrá málið.
Í umfjöllun DV segir að miðlinum hafi borist ábending um að maður hafi ógnað nemendum í Lækjarskóla í Hafnarfirði með hníf. Engan hafi sakað.
Þá hefur miðillinn eftir Skúla að stúlka hafi lýst því að maður hafi elt hana með hníf. Lögregla hafi ekki haft uppi á manninum enn.